Bæjarskrifstofur Kópavogs flytji í Nýja Norðurturninn ingvar haraldsson skrifar 19. júní 2015 09:47 Hingað gætu bæjarskrifstofur Kópavogs flutt fáist samþykki í bæjarstjórn og viðræður við eigendur húsnæðisins ganga eftir. vísir/valli
Kópavogsbær hefur hug á því að flytja bæjarskrifstofur Kópavogs frá Fannborg og í hinn Nýja-Norðurturn við Smáralind gangi samningaviðræður við eigendur turnsins eftir. Bæjarstjórn Kópavogs mun taka fyrir tillögu um að Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra verði veitt leyfi til samninga um kaup á þremur hæðum, sem alls eru 3.489 fermetrar, í Nýja-Norðurturninum á næsta fundi sínum á þriðjudag. Jafnframt því verði veitt heimild til að gefa út skuldabréf að nafnvirði 1,5 milljarðar króna til 25 ára. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í gær að vísa tillögunni til bæjarstjórnar með öllum greiddum atkvæðum.Karen E. Halldórsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn.Samhliða kaupum á nýju húsnæði er stefnt að því að selja núverandi bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar í Fannborg sem eru sagðar í mjög slæmu ásigkomulagi. „Nú síðast í vetur sprungu lagnir og lak vatn og það blæs inn köldu vatni á starfsmennina sem eru því miður að fara allt of oft heim veikir eða geta ekki verið þarna út af veðri og vindum,“ segir Karen E. Halldórsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn. Karen segir bæinn þurfa að fara í miklar viðhaldsaðgerðir eigi bæjarskrifstofurnar að vera áfram í Fannborg. Það fé sem fæst við söluna verði þá nýtt til að að fjármagna kaupin á nýja húsnæðinu að hluta. „Þetta er mjög verðmætt svæði. Þessi reitur er mjög miðsvæðis, með frábært útsýni og góðar samgöngur,“ segir Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs og oddviti Bjartrar framtíðar. Tillagan byggir á skýrslu sem Mannvit vann fyrir Kópavogsbæ um hagkvæmustu kosti í húsnæðismálum bæjarins. „Þetta er ódýrasti kosturinn, miðað við að selja eignina sem við erum í og byggingaréttinni,“ segir Theodóra. Theodóra bendir á að með því að flytja bæjarskrifstofurnar skapist mikið hagræði. Núverandi húsnæði sé um 4.500 fermetrar í þremur húsum og því minnki húsnæði undir skrifstofur bæjarins verulega. „Til langs tíma litið er þetta mikil hagræðing,“ segir Theodóra.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira