Lífið

María búin með sína fyrstu æfingu á stóra sviðinu í Vín

María Ólafsdóttir á sinni fyrstu æfingu í  Wiener Stadhalle þar sem Eurovision keppnin fer fram í næstu viku.
María Ólafsdóttir á sinni fyrstu æfingu í Wiener Stadhalle þar sem Eurovision keppnin fer fram í næstu viku.
Eurovisionstjarnan okkar, María Ólafsdóttir hefur nú lokið við sína fyrstu æfingu á stóra sviðinu í Vín. „Þetta gekk ótrúlega vel, það var geðveikt að syngja á þessu sviði, þetta er allt mjög stórt og mikið i kringum þetta,“ segir María Ólafsdóttir um sína fyrstu æfingu í Wiener Stadhalle þar sem Eurovision keppnin fer fram í næstu viku.

María og hennar fólk kom til Vínar í gærkvöldi eftir langt ferðalag en hópurinn þurfti að millilenda í Kaupmannahöfn. Okkar fólk þurfti þó að fara snemma á fætur því þau þurftu að mæta á sína fyrstu æfingu í höllinni fyrir hádegi í dag.





Það er þó ekkert grín að komast inn í höllina í Vín og upp á svið. „Maður þarf að fara í gegnum mjög mikið svona security og alls konar hljóðherbergi til að athuga hvort allt sé í lagi áður en maður fer á sjálft sviðið,“ bætir María við. 

Fæturnir á Maríu hafa fengið talsverða athygli en þeir eru gulllitaðir þegar hún stígur á sviðið. „Æji þetta er bara partur af laginu, ég er að labba í gylltum sandi og við viljum að lappirnar séu partur af þessu líka,“ segir María og hlær. Dagurinn í dag er þétt bókaður hjá Maríu og hennar fólki, æfingin tekur sinn tíma og svo eru blaðamannafundir og annað slíkt á dagskránni fram eftir degi.

Hér fyrir neðan er svo myndband frá fyrstu æfingunni og viðbrögðum blaðamanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×