Leikjavísir

Óstöðvandi velgengni GTA V

Samúel Karl Ólason skrifar
Nærri því 52 milljónir manna hafa keypt Grand Theft Auto V frá því hann kom út árið 2013. Hann er enn meðal söluhæstu leikja þar sem hann var nýverið gefinn út fyrir PC tölvur. Áður hafði leikurinn verið gefinn út fyrir PlayStation3 og Xbox 360 og seinna fyrir PS4 og Xbox One.

Á fyrstu þremur dögunum eftir að leikurinn kom fyrst út í nóvember 2013 voru tekjur af sölu hans einn milljarður dala, um 130 milljarðar króna. Sölutekjur fyrirtækisins fyrir ársfjórðunginn voru 427,7 milljónir dala.

Framleiðendur Grand Theft Auto V, Take Two Interactive Software sem eiga Rockstar Games, fóru fram úr spám sérfræðinga þegar kemur að ársfjórðungsuppgjöri sem fyrirtækið birti í gær. Þetta er níundi ársfjórðungurinn í röð sem Take Two fer fram úr spám sérfræðinga. Verð hlutabréfa fyrirtækisins hækkaði um átta prósent í gær, en frá því að GTA V kom fyrst út hefur hækkunin verið 40 prósent.

Samkvæmt Reuters fréttaveitunni vekur athygli að stafræn sala á leikjum þeirra hefur aukist gífurlega. Á fyrsta fjórðungi þessa árs fór 48 prósent sölunnar fram á internetinu, sem er hækkun um fimm prósent.

Auk þess að hafa selt gífurlegan fjölda eintaka af GTA V og NBA 2K15 leikjunum, hefur netspilun GTA skilað miklum hagnaði. Þar geta spilarar eytt raunverulegum peningum fyrir peninga inn í leiknum og hefur það skilað fyrirtækinu miklum tekjum.

GTA V er einn af dýrustu leikjum sem hafa verið framleiddir og kostaði framleiðsla hans um 265 milljónir dala. Ljóst er að Take Two hefur nú grætt verulega á framleiðslu leiksins og mun líklegast hagnast enn fremur.


Tengdar fréttir

Gamalt fólk spilar GTA

Bráðfyndið myndband sem sýnir eldra fólk ganga af göflunum á götum Los Santos.

Mörg dæmi um að foreldrar kaupi GTA V fyrir börn sín

Mörg dæmi eru um að börn komi í fylgd foreldra til að tryggja sér eintak af ofbeldisfullum tölvuleik sem nú tröllríður afþreyingar-bransanum. Framkvæmdastjóri Skífunnar segist aldrei hafa séð slíkar vinsældir.

GTA 5 kostaði 32,6 milljarða króna

Tölvuleikir standa nú jafnfætis kvikmyndum, sjónvarpsefni og teiknimyndum í afþreyingariðnaði. Kostnaður við nýjasta Grand Theft Auto leikinn eru svipaður og við dýrustu kvikmyndir heims. Tekjumöguleikar eru aftur sagðir enn meiri. Halað var inn fyrir kostnaði í forsölunni einni.

Grand Theft Auto yfir milljarð dala

Sala á tölvuleiknum Grand Theft Auto 5 hefur slegið öll met. Sölutekjur leiksins hafa nú þegar náð einum milljarði dala og nær þeim áfanga hraðar en nokkur annar tölvuleikur sem framleiddur hefur verið.

GTA 5 er dýrasti leikur allra tíma

"Þetta er engin smá smíði, það eru yfir þrjú hundruð tölvufræðingar búnir að vinna að þessum leik síðustu fimm árin,“ segir Ágúst Guðbjartsson, framkvæmdastjóri Gamestöðvarinnar. Dýrasti leikur allra tíma, Grand Theft Auto 5, kemur formlega út á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×