Tónlist

Frumsýnt á Vísi: Only Lover með East Of My Youth

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
East of my Youth
East of my Youth vísir/east of my youth
East Of My Youth var stofnuð árið 2014 og samanstendur af Herdísi Stefánsdóttur, Thelmu Marín Jónsdóttur og Guðna Einarssyni. Þau frumflytja nú sitt annað lag hér á Vísi en það heitir Only Lover. Þau hafa hafið söfnun inn á Karolina Fund fyrir sinni fyrstu plötu.

„Við vissum ekki af honum fyrr en á Airwaves,“ segir Thelma aðspurð um hvort þær séu nokkuð hræddar um að verða ruglað saman við breska tónlistarmanninn East India Youth. Hann átti að spila á Airwaves á síðasta ári en gleymdi að fá vegabréfsáritun til landsins. „Ætli við verðum ekki tilbúnar í samstarf ef það stendur til boða.“



Nafnið East Of My Youth er fengið úr bókinni On The Road eftir Jack Kerouac en þar segir „I was halfway across America, at the dividing line between the East of my youth and the West of my future.“

„Þetta er annað lagið sem við gefum út þó að við eigum fleiri til. Það er svolítill munur á þeim en þau myndu líklega bæði flokkast sem melódískt elektró pop,“ segir Thelma. „Einhverntíman stimplaði einhver okkur sem framtíðarpop sem er ekki leiðinlegur stimpill.“

Stefnt er að útgáfu plötu sveitarinnar með haustinu. Í tilefni af útgáfu nýja lagsins verður frumsýningarfögnuður í kvöld á KEX Hostel klukkan 21.

Hægt er að hlusta á lagið og sjá myndbandið hér ofar í fréttinni. Hér að neðan er síðan innslag frá því að sveitin var gestur í Hljóðheimum. Að lokum er hægt að styrkja útgáfu plötunnar með því að smella hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×