Lífið

Miðasala hafin fyrir næstu þætti af Ísland Got Talent

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Það er mikil stemning í salnum.
Það er mikil stemning í salnum. vísir/andri marinó
Miðasala fyrir næstu þrjú kvöld af Ísland Got Talent er farin í gang og fer fram inn á Miði.is. Næstu þrír þættir verða í beinni útsendingu og gefst fólki kostur á að vera með í salnum og fylgjast með. Þátturin verður tekinn upp í Talent-höllinni á Korputorgi.

Atriðin sex sem koma fram í fyrsta þættinum eru Flowon, Undir Eins, Alda Dís, Fimmund, Marcin Wisniewski og hin grænlenska Thelma Kajsdóttir.

Áhorfendur, jafnt í salnum og heima í stofu, geta tekið þátt í símakosningu fyrir sitt uppáhaldsatriði. Þegar þú kýst áttu möguleika á því að vinna 47" LG snjallsjónvarp frá Sjónvarpsmiðstöðinni, LG G3 snjallsíma eða LG G Watch R snjallúr. Símanúmer atriðanna eru 900-3001 fyrir Flowon, 900-3002 fyrir Undir Eins og svo koll af kolli.

Þátturinn hefst 19.00 en húsið opnar 18.30. Sé fólk ekki mætt í salinn 18.45 áskilur Stöð 2 sér þann rétt að setja annan í sætið í hans stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×