Heilsa

Sykurlaust avókadó- og kókosnammi

Gunnar Már Kamban skrifar
visir/gmk
Ég tileinkaði avókadó heilan kafla í HABS bókinni og þessi unaðslegi ávöxtur er bara það frábær að ég ætla að gefa ykkur enn frekari hugmyndir að því hvernig hægt er að nota hann í matargerð.

Hérna eru nokkrar góðar ástæður fyrir því að þú ættir að borða avókadó

Avókadó er stútfullt af næringu

Það er alveg hægt að segja að avókadó sé vítamínbomba en hérna er listinn í 100 gr af avókadó

K vítamín – 26% af dagsþörfinni

Fólín – 20% af dagsþörfinni


C vítamín – 17% af dagsþörfinni

Kalíum – 14% af dagsþörfinni


B5 vítamín – 14% af dagsþörfinni

B6 vítamín – 13% af dagsþörfinni

E vítamín –
10% af dagsþörfinni

100 gr innihalda um 160 kaloríur, 2 gr af próteinum og 15 gr af hollri fitu. Það eru 9 gr af kolvetnum í 100 gr en 7 gr af þeim eru trefjar svo það eru í raun aðeins 2 gr af kolvetnum í 100 gr.

Avókadó inniheldur hjartvænar fitur

Um 77% allra kaloría sem koma frá avókadó koma frá fitunni. Engar áhyggjur því þessi fita er af hinu góða og er svipuð að upplagi og ólífuolía. 

Þessi tegund fitu er talin hafa jákvæð áhrif á bólgur í líkamanum og er því góð vörn gegn bólgusjúkdómum.

Avókadó er trefjaríkt

Trefjar eru nauðsynlegur hluti af daglegri hollustu og þær er að finna í nokkuð ríkum mæli í avókadó. Trefjar auka mettun, hafa jákvæð áhrif á blóðsykurjafnvægi og geta aðstoðað við að léttast.

Trefjarnar í avókadó eru að hluta vatnsleysanlegar og hafa því þann eiginleika að „fæða“ góðu bakteríurnar í meltingarveginum sem er afar mikilvægt fyrir heilsuna.

100 gr af avókadó innihalda um 7 gr af trefjum sem er tæplega þriðjungur af ráðlögðum dagsskammti.

Avókadó og kókosnammi

Svakalega góðir og grænir nammibitar sem gott er að eiga í ísskápnum. Þetta eru tveggja laga bitar svo að við byrjum á því græna...

Hráefnin í græna laginu:

1 avókadó, lítið

2 msk erythritol frá NOW


6 msk kókosolía (brædd) t.d frá Himneskri Hollustu eða Cocofina

160 gr ristaðar kókosflögur frá Himneskri Hollustu

5 dropar stevia með vanillu frá NOW

salt á hnífsoddi

Aðferð:

Blandaðu öllum hráefnunum saman í matvinnsluvél og maukaðu þar til blandan verður slétt. Einnig hægt að nota blandara eða töfrasprota. Settu smjörpappír í eldfast mót, dreifðu blöndunni í mótið og settu í frystinn.

Hráefnin í súkkulaðinu:

3 msk kókosolía t.d frá Himneskri Hollustu eða Cocofina

50 gr dökkt súkkulaði t.d. 90% frá Naturata eða dökkt frá Balance með stevíu 2 msk erythritol frá NOW

3 msk kakó t.d. frá Rainforest foods

5 dropar stevia með vanillu frá NOW

salt á hnífsoddi

Aðferð:


Bræddu saman kókosolíuna, súkkulaðið og erythritol í potti á lágum hita. 2. Taktu pottinn af hitanum og bættu við restinni af hráefnunum. Taktu grænu blönduna úr kælinum og helltu súkkulaðiblöndunni yfir. Settu aftur í frystinn í 15 mínútur eða þar til súkkulaðið er harðnað.

Best að geyma í kæliskáp.

Frekari upplýsingar um sykurlausan lífstíl og námskeið má finna á heimasíðu Hættu að borða sykur.

Tengdar fréttir

Þjóðarátak gegn sykurneyslu

Íslendingar eru að verða ein af feitari þjóðum heims en hvernig í ósköpunum komum við okkur í þessa stöðu?

Leiðin að sykurlausri sælu

Ég, Sigga Dögg, er dísæt sykuræta sem ætla að vera svotil sykurlaus í september. Hvað hef ég komið mér útí? Hér er dagbókin mín um meðvitað sykurleysi.

Ertu sykurfíkill?

Rikka skrifar um sykurfíkn í tilefni átaksins Sykurlaus september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×