Handbolti

Nyegaard: Held að Guðmundur sé hissa

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bent Nyegaard hefur sterkar skoðanir á handbolta.
Bent Nyegaard hefur sterkar skoðanir á handbolta. Vísir/Eva Björk
Þýskaland og Danmörk eigast við í D-riðli á HM í handbolta í kvöld en leikurinn er einn sá áhugaverðasti á mótinu til þess - ekki síst fyrir þær sakir að þjálfarar beggja liða eru Íslendingar.

Bent Nyegaard, sérfræðingur dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2, segir að Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska liðsins, sé nú að kynnast því hversu mikil pressa það er í raun og veru að þjálfa lið þessarar miklu handboltaþjóðar.

Þýskaland hefur byrjað mótið vel með sigrum á Póllandi og Rússlandi. Danir hikstuðu með því að gera jafntefli gegn Argentínu í fyrsta leik en fóru létt með Sádí-Arabíu í fyrrakvöld.

„Það sést á blaðamannafundum beggja liða hversu mikil pressa er á báðum þessum þjálfurum. Ég held að Guðmundur sé fyrst núna að átta sig á því hversu mikil sú pressa er,“ segir Nyegaard.

„Þegar úrslit eins og gegn Argentínu líta dagsins ljós hafa allir Danir skoðun á málinu og allir vilja þeir fá svör. Ég veit að Dagur er í sömu stöðu í sínu starfi.“

Sjá einnig: Dönum er brugðið en Guðmundur er rétt að byrja

Hann segir þó að margt annað en bara aðkoma þjálfaranna muni hafa áhrif á leikinn í kvöld. „Niklas Landin æfir daglega með báðum hornamönnum þýska liðsins, þeim Uwe Gensheimer og Patrick Grötzki sem eru með áhrifamestum mönnum þýska liðsins. Patrick Wiencek og Rene Toft gera það líka hjá Kiel og það vill enginn tapa fyrir liðsfélaga sínum.“

Nyegaard segir að leikurinn skipti gríðarlega miklu máli fyrir bæði lið - ekki síst Þjóðverja. „Ef Þjóðverjar vinna vita þeir að þeir eiga auðveldan andstæðing í 16-liða úrslitum og því yrði sæti þeirra í fjórðungsúrslitum nánast tryggt með sigri gegn Danmörku.“

„Það yrðu frábærar fréttir fyrir þýskan handbolta. Þjóðverjar duttu auðvitað út í undankeppninni og ættu með rétti ekki einu sinni að vera í keppninni - eins og við þekkjum allir.“

Sjá einnig: Dagur: Gaman að geta strítt Gumma

„En engu að síður vilja allir í handboltaheiminum að Þýskaland verði með. Þjóðverjar eru með stærstu þjóðina á bak við sig og stærsta efnahaginn líka. En okkur, sérstaklega Norðurlandaþjóðunum, er meinilla við hvernig Hassan Mustafa [forseta IHF] og hans stjórn tókst að koma Þjóðverjum inn á þetta mót.“

Nyegaard segir að Guðmundur myndi finna vel fyrir því ef úrslitin í leiknum í kvöld verði neikvæð fyrir danska liðið. „Pressan myndi bara aukast og yrði gríðarlega mikil. Miðað við fyrirkomulagið á þessari keppni skiptir öllu máli að vera í fyrsta eða öðru sæti riðilsins. Danir ætluðu sér fyrsta sætið og það yrði erfitt fyrir marga að sætta sig við annað.“


Tengdar fréttir

Dagur: Gaman að geta strítt Gumma

Það verður stór stund í sögu íslensks handbolta þegar tvö af stærstu handboltaveldum heims, Þýskaland og Danmörk, mætast á Heimsmeistaramótinu í handbolta í Katar í kvöld. Bæði lið eru þjálfuð af Íslendingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×