Innlent

Ezadeen komin til hafnar í Corigliano Calabro

Atli Ísleifsson skrifar
Ezadeen siglir undir síerraleónskum fána.
Ezadeen siglir undir síerraleónskum fána. Vísir/AFP
Týr, skip Landhelgisgæslunnar, hefur nú dregið flutningaskipið Ezadeen til hafnar í ítölsku borginni Corigliano Calabro. Ítalska strandgæslan staðfesti þetta í tísti fyrr í kvöld.

Landhelgisgæslan aðstoðaði síðustu nótt ítölsku strandgæsluna við að bjarga flutningaskipinu Ezadeen sem var á reki í átt að ítölsku miðjarðarhafsströndinni. Um 450 flóttamenn voru um borð í skipinu og þar af minnst 60 börn. Áhöfnin hafði flúið frá borði og var skipið því stjórnlaust.

Týr kom að skipinu um klukkan átta í gærkvöldi út af Taranto flóa á suður Ítalíu. Ezadeen siglir undir síerraleónskum fána.

Fyrr í dag greindi Vísir frá því að nokkrir sjóliðar úr áhöfn Týs hafi verið fluttir yfir í skipið til að taka þar við stjórn og hóf varðskipið svo að draga það í átt til lands um klukkan fimm í nótt að íslenskum tíma. Ferðin til Ítalíu tók drjúga stund vegna slæms veðurs. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×