Svartsýnn á að takist að það semja í tæka tíð Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 3. janúar 2015 12:30 Samninganefndir almennra lækna og ríkisins funda í Karphúsinu klukkan hálf tvö í dag. Vísir/Ernir
Viðræður samninganefnda skurðlækna og ríkisins sigldu í strand á miðnætti eftir rúmlega níu stunda langan samningafund. Formaður Skurðlæknafélags Íslands er svartsýnn á að samningar náist áður en boðaðar verkfallsaðgerðir hefjast en ríkissáttasemjari sér ekki ástæðu til að boða nýjan fund í deilunni. Samninganefndir Skurðlæknafélags Íslands og ríksins hittust klukkan þrjú í gær í Karphúsinu. Að loknum níu stunda löngum fundi var ljóst að sátt í deilunni væri ekki í sjónmáli og því ekki ástæða til að funda lengur. „Við höfum verið að fara yfir málefnin og kasta á milli skjali sem við vonuðum við viðbrögðum frá ríkinu sem ekki hafa orðið og eftir að hafa verið að fara yfir sama málið endurtekið án breytinga þá var ekki ástæða til áframhaldandi viðræðna nú að mati ríkissáttasemjara,“ segir Helgi Kjartan Sigurðsson, formaður Skurðlæknafélags Íslands. Enginn nýr fundur hefur verið boðaður í deilu skurðlækna og ríksins. Hins vegar ætla samninganefndir Læknafélags Íslands og ríksins að funda í Karphúsinu klukkan hálf tvö í dag. Læknar í Læknafélagi Íslands hafa skemmri tíma til að ná samningum við ríkið þar sem verkfallsaðgerðir þeirra eiga að hefjast á miðnætti annað kvöld. Fyrsta verkfallslota skurðlækna hefst hins vegar ekki fyrr en 12. janúar eða eftir rúma viku. Helgi Kjartan er þó ekki bjartsýnn á að samningar náist á þessari viku. „ Það er orðið mjög svartsýnt um að það gerist hjá okkur skurðlæknum í það minnsta, “ segir Helgi Kjartan. Helgi Kjartan vill ekkert gefa upp um á hverju viðræðurnar stranda né hversu mikið ber í milli deiluaðila. „Það að fara út í einhver smáatriði um kjaraviðræðurnar gerum við ekki. Það þarf bara viljann til að leysa þetta og þá er þetta leyst. Það er það sem að strandar á,“ sagði Helgi Kjartan Sigurðsson.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira