Breyta leiðakerfi Strætó vegna samgöngumiðstöðvar Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 11. september 2015 07:00 Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður stýrihóps
Stýrihópur Reykjavíkurborgar um leiðakerfisbreytingar í Reykjavík hefur gefið út drög til umsagnar þar sem lagðar eru fram breytingar á leiðakerfi Strætó vestanmegin við Kringlumýrarbrautina. Breytingar eru vegna fyrirhugaðrar samgöngumiðstöðvar á Umferðarmiðstöðvarreit (BSÍ). Stýrihópurinn var skipaður til að fylgja eftir áframhaldandi þróun alhliða samgöngumiðstöðvar og í því tilliti endurskoða leiðakerfi almenningssamgangna. Nú er vinnu hópsins lokið og segir Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður hópsins, skýrsluna vera í umsagnarferli. „Einu breytingarnar á leiðakerfinu eru vestan megin við Kringlumýrarbrautina vegna fyrirhugaðs flutnings meginskiptistöðvar strætó við Hlemm niður að BSÍ. Með þessu er verið að tengja betur saman strætó, landsbyggðarvagna og flugrútu.“ Við kynningu lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og flugvallarvina fram ítrekaða gagnrýni á staðsetningu samgöngumiðstöðvar án undangenginnar þarfagreiningar og úttektar. Kristín Soffía segir ákveðna sátt ríkja um staðsetninguna og að hún sé hluti af stærra samhengi, aðalskipulagi. „Staðsetninguna teljum við góða því hún er í nálægð við miðborgina, háskólana og Landspítalann sem er stærsti vinnustaður landsins. Staðsetning austar í borginni myndi fjölga skiptingum í kerfinu og það teljum við óæskilegt,“ segir Kristín Soffía og bætir við að Samgöngumiðstöðin muni réttlæta stífari reglugerð um rútuumferð í miðbænum þar sem fólk muni betur geta komist leiðar sinnar. Eftir að hópurinn lýkur við að taka við umsögnum verða næstu skref að fara í samkeppni um deiluskipulag reitsins.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira