Nýr Mazda6 frumsýndur Finnur Thorlacius skrifar 12. mars 2015 10:08 Nýr Mazda6.
Á laugardaginn milli kl. 12-16 verður frumsýndur nýr Mazda6 í sýningarsal Mazda í Reykjavík að Bíldshöfða 8 og hjá Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5. Nýr Mazda6 uppfyllir kröfur um fegurð, gæði, lúxus og hátækni. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna enda býður hann uppá stílhreina hönnun, framúrskarandi aksturseiginleika og fádæma lágar eyðslutölur sem má þakka SkyActiv spartækni Mazda.Hönnun Mazda6 byggir á KODO hugmyndafræði Mazda. Á nýjum Mazda6 hafa bæði aftur- og framljós bílsins verið endurhönnuð með rennilegra útliti og í þeim er nú LED lýsing. Nýju LED aðalljósin gefa meiri birtu og það sem meira er, þau eru aðlögunarhæf. LED ljósin lýsa inn í beygjur og gefa meiri birtu til beggja hliða án þess að trufla aðvífandi umferð. LED ljósin spara einnig orku og þar með eyðslu. Þá hefur grill bílsins og framendi fengið sterklegra og fágaðra útlit. Innra rými bílsins hefur verið endurhannað að fullu og lögð var áhersla á að nota gæðaefni við smíði innréttinganna. Nýtt Multimedia kerfi var hannað í bílinn með 7“ snertiskjá í mælaborði. Auk þess hefur handbremsunni verið skipt út fyrir rafmagnshandbremsu og við það skapast meira pláss fyrir drykkjar- og geymsluhólf milli framsæta. Hægt er að fá Mazda6 með bensín- eða dísilvélum. Annars vegar er um að ræða 145 -192 hestafla bensínvélar sem eyða frá aðeins 5,5 l/100 km í blönduðum akstri og losun koltvísýring er frá einungis 129 g/km. Hins vegar er um að ræða 150 - 175 hestafla dísilvélar sem eyða frá aðeins 4,2 l/100 km blönduðum akstri og losun koltvísýrings er frá einungis 104 g/km. Þessi fádæma lága eldsneytisnotkun má þakka SkyActiv spartækni Mazda. Þess má geta að Mazda6 er nú einnig fáanlegur fjórhjóladrifinn (AWD).Brimborg hvetur áhugasama til að koma og prófa nýjan Mazda6 laugardaginn 14. mars milli kl. 12 og 16.
Mest lesið Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetingar Erlent Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Erlent