Hinir ríkustu tapa milljörðum Þórgnýr einar Albertsson skrifar 10. júlí 2015 08:00 Jack Ma, eigandi Alibaba, hefur miklu tapað í kínverska hruninu. nordicphotos/afp
Þeir 205 Kínverjar sem í mars síðastliðnum áttu milljarð Bandaríkjadala eða meira hafa tapað sem nemur 26 þúsund milljörðum króna síðasta mánuðinn, eða 195 milljörðum Bandaríkjadala. Tapið má rekja til hruns fjármálamarkaða í Kína. Samkvæmt útreikningum Forbes áttu þessir ríkustu menn Kína samtals um 75.331 milljarð króna fyrir hrunið. Árið áður áttu þeir 26.666 milljörðum minna, en ljóst er að hagnaður síðasta árs hefur þurrkast upp við hrunið. Fasteignajöfurinn Wang Jianlin, ríkasti maður Kína, hefur tapað um þúsund milljörðum. Eigandi vefverslunarinnar Alibaba, Jack Ma, hefur hins vegar tapað um 500 milljörðum. Einungis fimm af þeim 205 Kínverjum sem eiga milljarð Bandaríkjadala eða meira hafa ekki tapað peningum í hruninu. Sá eini sem hefur hagnast síðasta mánuðinn er Ma Jianrong, sem hefur auðgast á prjónuðum fötum. Kínverski hlutabréfamarkaðurinn hefur fallið mikið frá því í júní. Markaðir hafa á þeim tíma fallið um nærri þriðjung. Fall markaðanna nemur um þrjú þúsund milljörðum Bandaríkjadala sem samsvarar 402 þúsund milljörðum króna. Til samanburðar nema títt ræddar heildarskuldir Grikkja um 47.139 milljörðum króna.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira