„Nú deyrð þú!“ Jakob Bjarnar skrifar 7. september 2015 11:02 Úr norsku dómsorði frá 2013: „Þú ferð ekki frá mér. Nú er bara eitt í stöðunni, fyrst deyrð þú og svo dey ég. Ég drep þig. Nú deyrð þú.“
Jón Martin, hinn norski eiginmaður Nathalie Strelle konsertpíanista, sem fannst látin að heimili þeirra á Englandi með margvíslega höfuðáverka, var árið 2013 dæmdur í Osló fyrir ofbeldi gagnvart Strelle. Martin er nú í gæsluvarðhaldi og segir fátt í yfirheyrslum. Vísir greindi frá hinu hörmulega máli í síðustu viku og bauð þá uppá einstaka innsýn í stormasamt samband þeirra hjóna með viðtali við áður náinn vin John Martin og samstarfsmann þeirra hjóna, fiðluleikarann Hjörleif Valsson. Hann varð vitni að því þegar þau voru að draga sig saman, en það var í tengslum við kammersveit sem þau störfuðu öll við. Hjörleifur sagði að þó þessi ósköp væru vissulega áfall kæmi það þeim sem til þekktu ekki í opna skjöldu. Það hefði í raun verið tímaspursmál hvenær þetta endaði með ósköpum.Sjá: Hjörleifur sagði, í ítarlegu Vísisviðtali, að Jón Martin ætti við skapgerðarbresti að stríða og Strelle væri ögrandi bóhem sem vildi lifa hratt. Bæði voru þau gríðarlega metnaðarfull, og vildu leggja heiminn að fótum sér. Martin var kontrabassaleikari, umboðsmaður en Strelle var píanisti; einleikari í fremstu röð. Hinn klassíski heimur stendur á öndinni.„Þú ferð ekki frá mér“Málið hefur að vonum vakið mikla athygli ekki síst í Skandinavíu og Norðurlöndum öllum; á Íslandi en eiginmanninn má skilgreina sem Íslandsvin. Hann hefur komið hingað og dvalið í boði Hjörleifs. Jón Martin er norskur, Strelle er norsk/rússnesk og skömmu eftir morðið rifjar Aftenbladed upp að árið 2013 var Jón dæmdur fyrir heimilisofbeldi gagnvart Strelle. Hjörleifur er þannig í engu að ýkja í lýsingum sínum. Í hinum norska dómi greinir frá því að hann hafi dregið hana um gólfið á eftir sér, lagði maga sinn og brjóstkassa yfir andlit hennar þannig að hún mátti vart andann draga. Síðan tók hann hana hálstaki. Í dómnum er greint frá fleiri atvikum af þessu tagi og í tengslum við eitt slíkt er tilgreint að hann hafi haft í hótunum og sagt: „Þú ferð ekki frá mér. Nú er bara eitt í stöðunni, fyrst deyrð þú og svo dey ég. Ég drep þig. Nú deyrð þú.“ Jón Martin var þá dæmdur til fangelsisvistar í 90 daga, þar af 30 skilorðsbundið.
Tengdar fréttir Mátti sjá fyrir að sambandið myndi enda með ósköpum Hjörleifur Valsson fiðluleikari var á tímabili náinn vinur John Martin, sem grunaður er um að hafa myrt Nataliu Strelle píanista með hrottalegum hætti um síðustu helgi – og starfaði með þeim báðum. 4. september 2015 14:25 Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira
Mátti sjá fyrir að sambandið myndi enda með ósköpum Hjörleifur Valsson fiðluleikari var á tímabili náinn vinur John Martin, sem grunaður er um að hafa myrt Nataliu Strelle píanista með hrottalegum hætti um síðustu helgi – og starfaði með þeim báðum. 4. september 2015 14:25