Félag sem áður rak Júník gjaldþrota Birgir Olgeirsson skrifar 18. nóvember 2015 15:36 Sara Lind Pálsdóttir heldur áfram rekstri verslunar Júník í Kringlunni undir nýju félagi. Rekstri verslunar Júník í Smáralind hefur hins vegar verið hætt. Vísir/GVA „
Við höfum alltaf borgað okkar skuldir og starfsmenn okkar hafa alltaf fengið launin sín,“ segir Sara Lind Pálsdóttir, annar af eigendum tískuvöruverslunarinnar Júník, en félag sem áður hélt utan um rekstur Júník hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið sem um ræðir nefnist JS Föt og fylgihlutir, sem áður hét Júníkehf, en það var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness þann 12. nóvember síðastliðinn. Hélt félagið utan um rekstur verslana Júník í Smáralind og Kringlunni og útsöluverslun (outlet) í Bæjarlind í Kópavogi. Sara Lind segir Júník merkið nú vera komið undir rekstur félagsins Júník Kringlan ehf. Sara Lind á helming í því fyrirtæki á móti Kjartani Sævari Magnússyni. Verður rekstri verslunarinnar í Kringlunni og útsöluverslunarinnar í Bæjarlind haldið áfram en versluninni í Smáralind hefur verið lokað. „Við fórum kannski aðeins fram úr okkur með því að opna tvær búðir,“ segir Sara Lind sem segir reksturinn í Smáralind hafa verið erfiðan. Júník hafi viljað losna út úr Smáralind en forsvarsmenn verslunarmiðstöðvarinnar ekki fallist á það nema að greidd yrði leiga fram í tímann, að sögn Söru. „Það var þungur rekstur í Smáralind sem hélt okkur niðri og við komumst ekki út úr því, þannig að verslun Júník í Smáralind fór á hausinn,“ segir Sara Lind. Lögbirtingablaðið birti í dag svokallaða innköllun í tengslum við gjaldþrotaskipti JS Föt og fylgihlutir en þar skorar skiptastjóri félagsins, Björgvin Þórðarson, á alla þá sem telja sig eiga inni hjá félaginu að lýsa kröfum sínum fyrir skiptastjóra í búinu innan tveggja mánaða frá birtingu innköllunarinnar.
Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira