Hafa endurhannað vinsælan stafaruglsleik Óli Kristján Ármannsson skrifar 15. október 2015 07:00 Jóhannes Benediktsson, formaður Skraflfélags Íslands, heimsækir reglulega móðurömmu sína, Guðbjörgu Lilju Maríusdóttur, til að spila við hana skrafl. vísir/anton
Lokið hefur verið við hönnun á nýju stigakerfi fyrir íslenska útgáfu skrafls, stafaleiksins sem byggir á erlendu útgáfunni Scrabble. Að nýja skraflinu stendur Skraflfélag Íslands og segir Jóhannes Benediktsson, formaður félagsins, að vinna við nýja stigakerfið hafi verið afar umfangsmikil og staðið yfir síðasta hálfa árið. Gamla stigakerfið segir hann vera frá 1990. Það hafi verið búið til af metnaði, en um leið nokkrum vanefnum, enda ekki við tölvukost nútímans að styðjast. Við nánari skoðun hafi það reynst meingallað. Hafi leikmaður dregið eina ú-ið voru til dæmis yfir helmingslíkur á sigri hans. Þessi og fleiri vankantar hafi verið lagaðir. „Til dæmis getur sá sem spilar skrafl í nýja kerfinu fundið 70 prósentum fleiri orð þegar hann dregur stafi af handahófi úr pokanum, því stafirnir endurspegla nú íslenskuna betur.“ Jóhannes líkir breytingunni við að teknir hafi verið upp alvöruspaðar í borðtennisleik í stað panna. Í vinnslu nýja kerfisins segir Jóhannes að virkjaðir hafi verið allir helstu skraflsérfræðingar landsins, um 40 talsins, þar á meðal tölvukarlarnir Hjálmar Gíslason og Vilhjálmur Þorsteinsson og stærðfræðingarnir Stefán Ingi Valdimarsson og Sigrún Helga Lund. Þá hafi verið leigður tími í ofurtölvu til að aðstoða við tölfræðilegan samanburð á rúmlega 10 milljón mögulegum „niðurlögnum“ í leiknum. Hefðbundið skrafl segir Jóhannes að hafi verið uppselt hér á landi síðustu ár, en leikurinn sé engu að síður afar vinsæll. Fólk spili þetta heima hjá sér og að auki leiki um ellefu þúsund manns reglulega skrafl á netinu, á vefnum Netskrafl.is. Höfundur netskraflsins er Vilhjálmur Þorsteinsson og segir Jóhannes að þar verði nýja kerfið líka tekið upp á næstu dögum. Þá sé von á skrafli um næstu jól sem taki mið af þessu „nýja“ eða „íslenska“ kerfi og verði með nýja stafapokann. Breytingin segir Jóhannes að sé stórmál og jafngildi því í raun að skipta um reglur í skák. Á alþjóðavísu hafi hins vegar lengi verið ræddar breytingar á kerfinu án þess að menn hafi getað komið sér saman um þær. „Þetta kemur væntanlega til með að vekja mikla athygli ytra.“Stigagjöf og fjöldi stafa í gamla skraflinu og nýja.Mynd/Skraflfélag Íslands
Menning Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira