Benedikt Hákon þarf að játa sig sigraðan gegn Reykjavíkurborg Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. október 2015 16:00 Dóra S. Bjarnason prófessor og móðir Benedikts Hákonar, var í ítarlegu viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins í nóvember. Þar kom meðal annars fram að Benedikt er mikill tónlistarunnandi. Vísir/Stefán
Reykjavíkurborg var í Hæstarétti í dag sýknuð af kröfu Benedikts Hákonar Bjarnasonar, fjölfatlaðs manns. Benedikt hefur síðustu fjögur ár barist fyrir nauðsynlegri aðstoð allan sólarhringinn með fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar en hefur ítrekað verið synjað og fór hann því með málið fyrir dómstóla. Málið tapaðist í héraði í nóvember síðastliðnum en því var áfrýjað til Hæstaréttar sem kvað upp dóm sinn í dag.Kröfur Benedikts voru tvíþættar, annars vegar að felld yrði úr gildi ákvörðun Reykjavíkurborgar um synjun á sólarhringsþjónustu á heimili hans og hins vegar krafa um miskabætur, alls ein og hálf milljón. Það er í ljósi þess að aðstandendur Benedikts og starfsmenn hafa aðstoðað hann launalaust á næturnar síðustu ár. Reykjavíkurborg hefur hingað til útvegað honum aðstoðarfólki í um 16-19 klukkustundir á sólarhring. Í dómi Hæstaréttar, sem lesa má hér, kemur fram að ekki sé hægt að fallast á með Benedikt Hákoni að synjun Reykjavíkurborgar á kröfu hans hafi ekki verið nógu vel kynnt. Þá var ekki samþykkt að Benedikt hefði ekki átt kost á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Var því fallist á með héraðsdómi að ekkert væri komið fram sem benti til þess að Reykjavíkurborg hefði brotið gegn reglum stjórnsýsluréttar við meðferð á kröfu Benedikts um sólarhringsaðstoð á heimili hans. Þá var ekki talið að Reykjavíkurborg hefði komið þannig fram við Benedikt Hákon við meðferð málsins að í því hefði falist ólögmæt meingerð sem veitti honum rétt til miskabóta. Gjafsóknarkostnaður Benedikts og þóknun lögmanns greiðist úr ríkissjóði.
Tengdar fréttir Stefnir Jóni Gnarr í von um að fá nauðsynlega þjónustu Benedikt Hákon Bjarnason, fjölfatlaður maður sem nauðsynlega þarf á sólarhringsaðstoð að halda, hefur stefnt Jóni Gnarr, fyrrverandi borgarstjóra. 22. október 2014 16:20 Benedikt fær ekki nauðsynlega aðstoð Dómur féll í máli Benedikts Hákonar Bjarnasonar, fjölfatlaðs manns sem síðustu ár hefur barist fyrir nauðsynlegri aðstoð allan sólarhringinn. 20. nóvember 2014 12:15 Leitar allra leiða til að finna lausn fyrir son sinn Dóra S. Bjarnason hefur ítrekað reynt að fá lífsnauðsynlega aðstoð fyrir Benedikt Hákon Bjarnason, fjölfatlaðan son sinn, án árangurs. Hún hefur alið hann ein upp og með hækkandi aldri getur hún ekki veitt honum þá aðstoð sem hann þarf. 29. nóvember 2014 08:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
Stefnir Jóni Gnarr í von um að fá nauðsynlega þjónustu Benedikt Hákon Bjarnason, fjölfatlaður maður sem nauðsynlega þarf á sólarhringsaðstoð að halda, hefur stefnt Jóni Gnarr, fyrrverandi borgarstjóra. 22. október 2014 16:20
Benedikt fær ekki nauðsynlega aðstoð Dómur féll í máli Benedikts Hákonar Bjarnasonar, fjölfatlaðs manns sem síðustu ár hefur barist fyrir nauðsynlegri aðstoð allan sólarhringinn. 20. nóvember 2014 12:15
Leitar allra leiða til að finna lausn fyrir son sinn Dóra S. Bjarnason hefur ítrekað reynt að fá lífsnauðsynlega aðstoð fyrir Benedikt Hákon Bjarnason, fjölfatlaðan son sinn, án árangurs. Hún hefur alið hann ein upp og með hækkandi aldri getur hún ekki veitt honum þá aðstoð sem hann þarf. 29. nóvember 2014 08:00