Ráðhús Kópavogs verði í miðbænum Nadine Guðrún Yaghi skrifar 21. desember 2015 09:00 Vinnan var unnin í framhaldi af auglýsingu Kópavogsbæjar um sölu á skrifstofum bæjarins og þróun miðbæjarsvæðisins. mynd/zeppilin „
Okkar hugmynd gengur út á það að byggja nýtt hús í Hamraborginni sem yrði ráðhús bæjarins. Hluti þess yrði þó væntanlega leigður undir aðra starfsemi, enda húsið stærra en þörf er á undir bæjarskrifstofur,“ segir Orri Árnason, arkitekt á arkitektastofunni Zeppelin.Orri Árnason arkitektTillöguna að uppbyggingu miðbæjar Kópavogs hefur Zeppelin unnið ásamt nokkrum fjárfestum. Vinnan var unnin í framhaldi af auglýsingu Kópavogsbæjar um sölu á skrifstofum bæjarins og þróun miðbæjarsvæðisins. Starfshópur um húsnæðismál bæjarskrifstofu Kópavogs hefur ekki komist að samkomulagi um framtíðarlausn og er klofinn í afstöðu sinni. Meðlimir hópsins geta ekki sammælst um hvort flytja eigi skrifstofur í annan hvorn af turnunum tveimur við Smáralind eða ráðast í endurbætur á núverandi húsnæði. „Ráðhúsið tæki mið af bogadregnum húsum í næsta umhverfi og auðvitað einnig af Kópavogskirkju, kennileiti bæjarins. Þjónustubygging sem myndi teygja sig út frá ráðhúsinu og yfir á brúna yfir Kópavogsgjá myndi hýsa verslanir og veitingastaði og mynda skjól fyrir vindum, um leið og hún myndar ráðhústorg, ásamt tveimur byggingum sem standa sín hvorum megin brúarinnar,“ segir Orri og bætir við að á ráðhústorginu yrðu veitingastaðir og verslanir.Svona gæti miðbær Kópavogs litið út.mynd/zeppilinFjórar tillögur um nýjar bæjarskrifstofur bárust Kópavogsbæ eftir að auglýst var eftir þeim. Að sögn Orra virðist sem fjórða tillagan, tillaga Zeppelin, hafi dottið út af borðinu. „Tillöguna kynntum við á fundi þar sem einungis mættu tveir embættismenn fyrir hönd bæjarins,“ segir hann. Að sögn Orra eiga bæjarskrifstofurnar heima í ráðhúsi í miðbæ Kópavogs, enda styrki slíkt fyrirkomulag allan brag og bæjarvitund. „Það vita allir að miðbær Kópavogs er í Hamraborginni og við viljum halda skrifstofunum á svæðinu en þróa og fegra það í leiðinni. Öllum breytingum fylgja tækifæri og er umrætt svæði í slæmu ásigkomulagi. Menn hafa lengi haft hugann við það að þarna verði flottur miðbær og lagt í það ómælt fjármagn. Í því sambandi er sjálfgefið að nefna yfirbyggingu sjálfrar gjárinnar, Gerðarsafn og Salinn. Okkar hugmynd er liður í því að styrkja enn frekar við þá uppbyggingu,“ segir Orri Árnason.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira