Ristilkrabbamein og skipulögð hópleit 3. október 2015 10:00 Ristilkrabbamein (ristil- og endaþarmskrabbamein) er önnur algengasta dánarorsök af völdum krabbameina á Vesturlöndum en árlega greinast að meðaltali 135 einstaklingar hérlendis. Árlega látast að meðaltali 50 úr sjúkdómnum. Reglubundin skipulögð hópleit hefði getað bjargað mörgum þessara mannslífa. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt að hópleit er árangursrík, bjargar mannslífum og sparar fé. Krabbameinsfélagið hefur í mörg ár sýnt þessu máli áhuga og síðan í apríl hefur höfundur unnið sem verkefnastjóri að undirbúningi skipulagðrar hópleitar ristilkrabbameins í samvinnu við landlækni og að beiðni velferðarráðuneytis. Skipulögð hópleit er opinber forvarnaráætlun, ætluð einstaklingum í skilgreindum áhættuhópi. Þegar ristilkrabbamein á í hlut eru bæði konur og karlar í áhættu. Um 80% greinast á aldrinum 55-85 ára. Samkvæmt alþjóðlegum klínískum leiðbeiningum eru einstaklingar 50-75 ára skilgreindir í meðaláhættu að fá sjúkdóminn. Ofþyngd, kyrrseta, reykingar, rautt kjöt og áfengi eru helstu áhættuþættir. Annað sem eykur áhættu enn frekar er fjölskyldusaga um ristilkrabbamein, langvarandi bólgusjúkdómar í ristli (í átta ár eða lengur) og erfanleg heilkenni sem bera með sér miklar líkur á ristilkrabbameini, jafnvel á barnsaldri. Markmið skipulagðrar hópleitar er að draga úr sjúkdómsbyrði og dánartíðni af völdum ristilkrabbameins með því að leita að sjúkdómnum í einkennalausum þannig að það komi þeim að gagni en skaði ekki. Langflest ristilkrabbamein þróast úr óeðlilegum frumuvexti í slímhúð ristils (sepamyndun) þar sem sum eru eiginleg forstig. Um þriðjungur einstaklinga eldri en 50 ára eru líklegir til að vera með slíka sepa. Þeir geta verið hvar sem er í ristlinum og fara ekki af sjálfu sér en geta hins vegar þróast á mörgum árum í banvænt ristilkrabbamein. Þessi staðreynd þýðir að góður tími gefst til að finna og uppræta sepa á tiltölulega skaðlausan hátt og jafnvel bjarga frá krabbameinsmyndun. Tíðni sjúkdómsins er heldur lægri hjá konum en körlum á sama aldri. Miðlæg leitarstöð Í skýrslu Krabbameinsfélagsins til heilbrigðisráðherra er mælt með lýðgrundaðri skipulegri hópleit að evrópskri fyrirmynd, þar sem heilbrigðisyfirvöld bera ábyrgð á framkvæmd, kostnaði og gæðum. Miðlæg leitarstöð, rekin af fagfólki, skipuleggur og hefur yfirsýn yfir öll stig hópleitarinnar. Þessi leið ætti að tryggja jafnan rétt íbúa til þjónustunnar. Margir fagaðilar koma að hópleitinni. Leitarstöð Krabbameinsfélagsins sem hefur reynslu af hópleit gæti hýst stjórnstöð í samvinnu við Krabbameinsskrána. Gert er ráð fyrir að einstaklingum í meðaláhættu verði boðin þátttaka þeim að kostnaðarlausu með bréfi og heimsendu sýnatökusetti til að ná hægðasýni sem ætlað er til skimunar fyrir blóði í hægðum. Leiðbeiningar fylgi með hvernig á að taka sýnið sem síðan er sent til baka á rannsóknarstofu. Niðurstaða myndi verða skráð og þaðan myndi sá sem þiggur þjónustuna fá svarbréf. Langt gengnir separ og nánast öll ristilkrabbamein á frumstigum blæða þó ekki verði alltaf tekið eftir því með berum augum. Þetta er hægt að greina með hægðaprófum. Komin eru á markað ný hægðapróf (FIT), sem mæla sértækt og með mikilli nákvæmni mannablóð í hægðum. Hægt er að nýta þau til að finna þá sem eru í brýnni þörf fyrir ristilspeglun. Unnið er að því að þessi tegund prófa komi á markað hér og hægt verði að gera slíkar mælingar hérlendis. Árangursríkasta aðferðin síðan til að greina hvað veldur örblæðingu, ef hún reynist vera til staðar, er ristilspeglun. Skýringin gæti verið sepi eða ristilkrabbamein, en einnig bólgusjúkdómar í ristli eða gyllinæð, svo önnur dæmi séu nefnd. Með ristilspeglun er möguleiki á sýnatöku til greiningar. Separ og sum ristilkrabbamein á frumstigum er einnig mögulegt að fjarlægja í ristilspegluninni. Mikilvægt er að átta sig á því að skimun á ekki við ef einstaklingur er kominn með einkenni ristilkrabbameins. Í þeim tilfellum þarf að leita strax læknis með greiningu og meðferð í huga. Allar blæðingar frá endaþarmi þarf að taka alvarlega og þarfnast læknisskoðunar. Kynntu þér einkenni ristilkrabbameins á ristilkrabbamein.is eða bleikaslaufan.is. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun