Mannskæð sprenging í bænum Suruc í Tyrklandi Þórgnýr Albert Einarsson skrifar 21. júlí 2015 06:00 Að minnsta kosti 28 féllu í árás á tyrkneska bæinn Suruc við landamæri Tyrklands og Sýrlands. nordicphotos/afp
Sjálfsmorðsárásarmaður felldi að minnsta kosti 28 manns í árás á tyrkneska bæinn Suruc sem stendur nærri landamærum Tyrklands og Sýrlands. Engin samtök lýstu yfir ábyrgð á árásinni en öryggisfulltrúi bæjarstjórnar Suruc sagðist hræddur um að Íslamska ríkið stæði að baki henni. Undir það tók héraðsstjórinn í Suruc, Abdulla Ciftci. „Í ljósi þess að þetta var sjálfsmorðsárás þá teljum við miklar líkur á því að Íslamska ríkið sé ábyrgt.“ Suruc er um tólf kílómetra frá sýrlenska bænum Kobane sem sýrlenskir Kúrdar hafa varið fyrir árásum Íslamska ríkisins undanfarna mánuði. Fjölmiðlar í Tryklandi greindu frá því í gær að ráðist hefði verið á menningarmiðstöð sem hýsti umræðufund sem kúrdísk stjórnmálasamtök, sem starfa að endurbyggingu Kobane, stóðu fyrir. Árásin var gerð í kjölfar þess að tyrknesk lögregla hafði handtekið 500 herskáa íslamista undanfarið. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, fordæmdi árásina þegar hann frétti af henni og kallaði hana hryðjuverk.
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira