Nítján ára landslið Íslands vann Evrópumótið Jóhann Óli Eiðsson skrifar 3. júlí 2015 21:47 Ómar Ingi Magnússon varð markahæsti leikmaður Íslands á mótinu. vísir/vilhelm
Íslenska landsliðið í handbolta karla, skipað leikmönnum nítján ára og yngri, vann í kvöld sigur á opna Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Gautaborg. Liðið tryggði sér sigur með því að leggja heimamenn að velli 31-29. Íslenska liðið var að vinna þetta mót í fyrsta sinn en það er haldið í kringum Partille Cup mótið í Gautaborg. Framan af leiknum eltu drengirnir andstæðinginn og voru mest fjórum mörkum undir. Staðan í hálfleik var 13-10. Þegar leið á síðari hálfleikinn rankaði íslenska liðið við sér og náði að jafna í 19-19. Smám saman seig liðið fram úr og náði þriggja marka forystu þegar mest lét. Undir lokin gerðu Svíar harða atlögu að strákunum og náðu að minnka muninn í eitt mark en nær komust þeir ekki. Íslenska liðið hélt út og er því sigurvegari. Egill Magnússon, sem hafði verið hálfmeiddur allt mótið, fór á kostum í leiknum og skoraði tíu mörk. Valsarinn Ómar Ingi Magnússon var næstur honum en hann skoraði átta. Ómar var markahæsti maður Íslands á mótinu en hann skoraði 36 mörk á því. Ómar Ingi var valinn besti leikstjórnandi mótsins og Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrmisson valinn besti vinstri hornamaður mótsins. Einar Guðmundsson og Einar Andri Einarsson eru þjálfarar íslenska liðsins.Ísland - Svíþjóð 31-29 (13-16)Mörk Íslands í leiknum: Egill Magnússon 10, Ómar Ingi Magnússon 8, Óðinn Þór Ríkharðsson 3, Kristján Örn Kristjánsson 3, Hákon Styrmisson 2, Arnar freyr Arnarsson 2, Aron Pálsson 1, Birkir Benediktsson 1. Að neðan má sjá myndband frá vefsíðunni fimmeinn.is sem sýnir bikarinn fara á loft í leikslok.
Handbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Rúnar Páll kynnti teymið sitt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira