Frábær árangur Keflavíkurflugvallar Björn Óli Hauksson skrifar 11. júlí 2014 07:00 Keflavíkurflugvöllur var nú á dögunum valinn á heiðurslista Alþjóðasamtaka flugvalla, Airports Council International (ACI), með bestu flugvöllum heims. Viðurkenningin, ACI Director General's Roll of Excellence, er veitt fyrir frábæran árangur í þjónustukönnunum samtakanna, en Keflavíkurflugvöllur hefur jafnan hlotið afar góða einkunn frá farþegum mörg undanfarin ár. Þannig völdu flugfarþegar Keflavíkurflugvöll besta flugvöll í Evrópu árið 2009 og besta flugvöll í Evrópu í sínum stærðarflokki árið 2011. Þjónustukannanir ACI mæla meðal annars þætti eins og þjónustu við innritun og vopnaleit, gæði verslana og veitinga á flugvellinum, vegabréfs- og tollskoðun, umsýslu farangurs og hvort almennt takist að halda flugi á áætlun.Starfsfólk í fremstu röð Viðurkenningin nú staðfestir að á Keflavíkurflugvelli er þjónusta við farþega á heimsmælikvarða. Síðustu árin hefur verið unnið markvisst í því í að uppfylla væntingar viðskiptavina, sem er sérstaklega nauðsynlegt þegar farþegaaukning er eins mikil og verið hefur. Við hjá Isavia erum ákaflega stolt af þessum mikilsverða árangri sem fyrst og fremst er að þakka frábæru starfsfólki og traustum samstarfsaðilum á flugvellinum. Keflavíkurflugvöllur er ekki einungis megingátt ferðamanna til landsins heldur einnig lykilhlekkur í uppbyggingu íslensks efnahagslífs. Verkefni Isavia grundvallast á öflugu starfsliði sem sinnir fjölbreyttum, sérhæfðum og krefjandi störfum um allt land, allan ársins hring. Starfsemi félagsins skiptir miklu máli fyrir íslenskt samfélag enda ber fyrirtækið ábyrgð á því að rekstur allra flugvalla landsins og flugumferð til og frá landinu og innan þess gangi vel og örugglega fyrir sig. Það er mikilvægt fyrir starfsemina á Keflavíkurflugvelli að til staðar sé öflug flugleiðsöguþjónusta til að leiðbeina flugvélum til og frá Íslandi. Þá eru traustir starfsmenn á flugvöllunum á Akureyri, Reykjavík og Egilsstöðum reiðubúnir að taka á móti millilandaflugvélum, þau fáu skipti sem veður hamlar flugi til Keflavíkur.Mikil uppbygging framundan Framundan eru stór verkefni hjá Isavia við frekari uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli sem tryggja mun þjónustu við ört stækkandi hóp ferðamanna sem leggja leið sína til landsins. Fyrr á þessu ári hófust framkvæmdir við nýtt farangursflokkunarkerfi sem miða að því að tvöfalda afkastagetu þess og nú á dögunum tók Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrstu skóflustunguna að stækkun suðurbyggingar flugstöðvarinnar þar sem bætast munu við sex ný hlið. Slíkar breytingar geta auðvitað haft tímabundin áhrif á starfsemina á flugvellinum en starfsfólk Isavia mun leysa þessi nýju verkefni með sama þrótti og einkennt hefur margverðlaunaða starfsemi félagsins á undanförnum árum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Sjá meira
Keflavíkurflugvöllur var nú á dögunum valinn á heiðurslista Alþjóðasamtaka flugvalla, Airports Council International (ACI), með bestu flugvöllum heims. Viðurkenningin, ACI Director General's Roll of Excellence, er veitt fyrir frábæran árangur í þjónustukönnunum samtakanna, en Keflavíkurflugvöllur hefur jafnan hlotið afar góða einkunn frá farþegum mörg undanfarin ár. Þannig völdu flugfarþegar Keflavíkurflugvöll besta flugvöll í Evrópu árið 2009 og besta flugvöll í Evrópu í sínum stærðarflokki árið 2011. Þjónustukannanir ACI mæla meðal annars þætti eins og þjónustu við innritun og vopnaleit, gæði verslana og veitinga á flugvellinum, vegabréfs- og tollskoðun, umsýslu farangurs og hvort almennt takist að halda flugi á áætlun.Starfsfólk í fremstu röð Viðurkenningin nú staðfestir að á Keflavíkurflugvelli er þjónusta við farþega á heimsmælikvarða. Síðustu árin hefur verið unnið markvisst í því í að uppfylla væntingar viðskiptavina, sem er sérstaklega nauðsynlegt þegar farþegaaukning er eins mikil og verið hefur. Við hjá Isavia erum ákaflega stolt af þessum mikilsverða árangri sem fyrst og fremst er að þakka frábæru starfsfólki og traustum samstarfsaðilum á flugvellinum. Keflavíkurflugvöllur er ekki einungis megingátt ferðamanna til landsins heldur einnig lykilhlekkur í uppbyggingu íslensks efnahagslífs. Verkefni Isavia grundvallast á öflugu starfsliði sem sinnir fjölbreyttum, sérhæfðum og krefjandi störfum um allt land, allan ársins hring. Starfsemi félagsins skiptir miklu máli fyrir íslenskt samfélag enda ber fyrirtækið ábyrgð á því að rekstur allra flugvalla landsins og flugumferð til og frá landinu og innan þess gangi vel og örugglega fyrir sig. Það er mikilvægt fyrir starfsemina á Keflavíkurflugvelli að til staðar sé öflug flugleiðsöguþjónusta til að leiðbeina flugvélum til og frá Íslandi. Þá eru traustir starfsmenn á flugvöllunum á Akureyri, Reykjavík og Egilsstöðum reiðubúnir að taka á móti millilandaflugvélum, þau fáu skipti sem veður hamlar flugi til Keflavíkur.Mikil uppbygging framundan Framundan eru stór verkefni hjá Isavia við frekari uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli sem tryggja mun þjónustu við ört stækkandi hóp ferðamanna sem leggja leið sína til landsins. Fyrr á þessu ári hófust framkvæmdir við nýtt farangursflokkunarkerfi sem miða að því að tvöfalda afkastagetu þess og nú á dögunum tók Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrstu skóflustunguna að stækkun suðurbyggingar flugstöðvarinnar þar sem bætast munu við sex ný hlið. Slíkar breytingar geta auðvitað haft tímabundin áhrif á starfsemina á flugvellinum en starfsfólk Isavia mun leysa þessi nýju verkefni með sama þrótti og einkennt hefur margverðlaunaða starfsemi félagsins á undanförnum árum.
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar