Fyrsti roller-derby leikurinn á laugardaginn Kristjana Arnarsdóttir skrifar 18. júní 2014 11:30 Um 35 konur æfa roller derby hjá Roller Derby Ísland. Tólf þeirra eru nú á leiðinni til Finnlands í keppnisferð. Mynd/Pétur Jóhann Pétursson „
Þetta verður svona fyrsti formlegi leikurinn okkar, þó svo að við séum í raun að spila innbyrðis,“ segir Guðný Jónsdóttir, stofnandi roller derby á Íslandi en á laugardaginn fer fram fyrsti roller derby-leikurinn hér á landi. Roller derby er hröð snertiíþrótt sem margir lýsa sem ruðningi á hjólaskautum. Leikmenn skauta í hringi, hrinda andstæðingum úr vegi og reyna að skora stig. „Liðið var stofnað fyrir um það bil þremur árum en þetta fór allt rólega af stað til að byrja með. Allir íþróttasalir héldu að það kæmu rispur eftir skautana svo til að byrja með æfðum við í bílakjallaranum á Höfðatorgi,“ segir Guðný, sem er einn fimm þjálfara liðsins. Leikurinn á laugardaginn fer fram í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi klukkan 12.00. Er hann hluti af undirbúningi liðsins fyrir fyrstu keppnisferðina en liðið er á leiðinni til Finnlands í júlí. Guðný segir að hópnum verði skipt í tvennt og keppa stelpurnar því innbyrðis, enda ekkert annað roller derby-lið á Íslandi. „Við erum um 35 í félaginu en erum 12 á leiðinni til Finnlands að spila. Í október fáum við svo franskt lið í heimsókn svo hjólin eru farin að snúast almennilega núna,“ segir Guðný, sem hvetur fólk til að mæta á laugardaginn. „Við förum í sumarfrí í júlí en byrjum aftur í ágúst með sérstakt nýliðaprógramm. Svo það er um að gera að fylgjast með okkur.“
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira