Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Ólafsfirði Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. júní 2014 11:20 Árásin átti sér stað í heimahúsi við Aðalgötu í bænum. VISIR/GK
Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á þrítugsaldri fyrir tilraun til manndráps í kjölfar árásar í Ólafsfirði þann 30. júní árið 2012. Árásin átti sér stað í heimahúsi við Aðalgötu í bænum og var fyrirtaka í málinu nú síðastliðinn miðvikudag. Manninum er gefið að sök að hafa stungið mann um tvítugt alls fjórum sinnum; ; í vinstri öxl, ofarlega hægra megin í brjóstkassa, við hægri mjaðmarspaða og neðarlega í hægri síðu með þeim afleiðingu að hnífurinn smaug í gegnum kviðvegg og inn í lifrina. Fyrir vikið hlaut fórnarlambið blæðingu á lifur sem getur leitt til dauða ef ekki er brugðist við með skjótum hætti. Skjót viðbrögð urðu þó til þess að maðurinn var ekki talinn í lífshættu eftir að hann komst undir læknishendur á Akureyri. Árásin orsakaði einnig þriggja til fjöggurra sentímetra langa stunguáverka á hægri brjóstkassa, álíka langan skurð á hægri síðu og aðra minni áverka á fyrrgreinda líkamshluta. Er maðurinn krafinn um eina milljón króna í skaðabætur og verði hann fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi. Búist er við því að aðalmeðferð málsins hefjist í Héraðsdómi Norðurlands Eystra á Akureyri þann 16. september næstkomandi.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði Sjá meira