Lífið

Köntrí á Kex um helgina

Hinn bandaríski Sam Amidon kemur fram á sunnudagskvöld á Kex.
Hinn bandaríski Sam Amidon kemur fram á sunnudagskvöld á Kex. Mynd/Einkasafn
KEX Köntrí er amerísk menningarhátíð sem fer fram KEX Hosteli frá 4. til 6. júlí næstkomandi. Boðið verður upp á tónlist, mat og drykk sem á rætur að rekja til fylkjanna Tennessee og Kentucky.

Fírað verður upp í grillinu, banjóið stillt og dustað af smekkbuxunum. Rif, blágresi, límónaði, kántrítónlist, maísstönglar, grill og coca-cola verða á boðstólnum.

Veitingastaður KEX Hostels hefur útbúið sérstakan Köntrí matseðil sem verður í boði á meðan hátíðin stendur yfir. Aðgangur að tónleikum KEX Köntrí er án endurgjalds.



Dagskráin í heild sinni:

4. júlí - Föstudagur

18.00 – KEX Köntrí sett á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna

20.00 – Mr. Silla

21.00 – Snorri Helgason

22.00 – Morgan O'Kane

5. júlí – Laugardagur

20.00 – Illgresi

21.00 – Morgan O'Kane

22.00 – Opið svið

6. júlí – Sunnudagur

21.00 – My bubba (IS/SE)

22.00 – Sam Amidon (US)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.