Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, hefur valið 18 manna leikmannahóp til að taka þátt í æfingum og lokaleikjum Íslands í undankeppni fyrir EM 2014.
Lokakeppnin verður leikin í desember í Ungverjalandi og Króatíu en framundan eru leikir við Finnland og Slóvakíu.
Leikið verður í Finnlandi miðvikudaginn 11. júní n.k. kl. 16.00 (að íslenskum tíma) en seinni leikurinn er heimaleikur við Slóvakíu sem fer fram í Laugardalshöll sunnudaginn 15. júní kl 15.00.
Ágúst valdi þrjá nýliða í hópinn en það eru þær Helena Rut Örvarsdóttir, Melkorka Mist Gunnarsdóttir og Steinunn Hansdóttir en sú síðastnefnda spilar með Skanderborg í Danmörku.
Hópurinn lítur þannig út:
Markmenn:
Dröfn Haraldsdóttir, ÍBV
Íris Björk Símonardóttir, Grótta
Melkorka Mist Gunnarsdóttir, Fylkir
Aðrir leikmenn:
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Valur
Arna Sif Pálsdóttir, SK Aarhus
Birna Berg Haraldsdóttir, Sävehof
Brynja Magnúsdóttir, Flint Tönsberg
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan
Hildigunnur Einarsdóttir, Tertnes
Hildur Þorgeirsdóttir, Koblenz
Karen Knútsdóttir, Sønderjyske
Karólína Lárudóttir, Valur
Marthe Sördal, Fram
Ramune Pekarskyte, Sønderjyske
Steinunn Hansdóttir, Skanderborg
Sunna Jónsdóttir, BK Heid
Unnur Ómarsdóttir, Grótta
Ágúst valdi þrjá nýliða fyrir lokaleikina í undankeppni EM
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið





Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“
Íslenski boltinn




Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits
Enski boltinn

ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík
Íslenski boltinn