Tveir handteknir fyrir vörslu eftir maríjúana-mótmæli Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. apríl 2014 13:00 Í 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni eru upp talin þau fíkniefni sem eru ólögleg á Íslandi. Varsla og meðferð þessara efna er refsiverð. Þar kemur fram að "Cannabis (Kannabis, Marihuana, Hass)" falli þar undir. myndir/aðsendar
Tveir ungir menn voru handteknir og sektaðir fyrir vörslu maríjúana á Austurvelli í gær þegar félagsskapur sem kallast Reykjavík Homegrown hittist til að reykja saman kannabisefni. Hópurinn hittist til að reykja maríjúana á alþjóðlegum degi kannabisreykinga, svokölluðum 420 degi. Á annan tug ungra karlmanna var þarna saman kominn til að reykja kannabis og mótmæla því að varsla maríujúana er refsiverð hér á landi. Varsla og meðferð maríjúana og skyldra efna er refsiverð samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni. Brotum vegna vörslu er yfirleitt lokið með sekt. Á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er lögreglan spurð hvers vegna lögbrot sem framin hafi verið á Austurvelli fyrir allra augum hafi ekki verið stöðvuð og hvort lögreglan sé farin að lúffa fyrir lögbrotum í miðbæ Reykjavíkur. Sá sem skrifar fyrir hönd lögreglunnar á Facebook segir að gera verði greinarmun á því að þarna hafi verið samankominn hópur sem vilji berjast fyrir lögleiðingu tiltekinna fíknefna en slík mótmæli séu í eðli sínu lögleg. Við slík mótmæli sé hins vegar ekki hægt hægt að réttlæta lögbrot eins og td. neyslu kannabisefna. Lögreglan upplýsir jafnframt að tveir einstaklingar hafi verið handteknir með fíkniefni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru mennirnir handteknir og sektaðir fyrir vörslu á kannabisefnum og telst málum þeirra lokið. Stefán Eiríksson lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins vildi ekki láta hafa neitt eftir sér um málið og vísaði á svör lögreglunnar á fésbókarsíðu hennar.
Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Innlent Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Fleiri fréttir Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Sjá meira