Tilhæfulausar kærur Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar 26. júní 2014 07:00 Ríkissaksóknari hefur haft til meðferðar kærur á hendur Benedikt Bogasyni og Ingveldi Einarsdóttur hæstaréttardómurum fyrir brot í opinberu starfi. Kæran á hendur Benedikt Bogasyni virðist eingöngu byggð á frásögn „vitnis“ sem er í þjónustu kæranda og virðist þiggja greiðslur fyrir. Það eina sem kann að vera rétt í frásögn vitnisins er að sérstakur saksóknari lét sækja endurrit hlerunarúrskurðar hjá kæranda á heimili Benedikts. Kæran er því með öllu tilefnislaus og til marks um það virðist sem enginn af lögmönnum kæranda hafi treyst sér til þess að leggja nafn sitt við kæruna. Kærandi undirritaði kæruna því sjálfur. Það eina áhugaverða sem eftir stendur í þessu kærumáli er að „vitnið“ eða jafnvel kærandi sjálfur upplýsi hversu háar fjárhæðir „vitnið“ hefur þegið fyrir þjónustu sína í þágu kæranda. Kæran á hendur Ingveldi Einarsdóttir er jafn sérkennileg, en efni kærunnar var kynnt á forsíðu Fréttablaðsins áður en kæran barst ríkissaksóknara. Fyrirsvarsmaður kæranda lýsti því strax yfir í fjölmiðlum að lögbrot hæstaréttardómarans hafi verið augljóst og sagði svo: „Við teljum að dómari hafi komist að rangri niðurstöðu og að það hafi verið brotin lög á okkur.“ Tilvitnuð ummæli verða ekki skilin öðruvísi en svo að lögbrot hæstaréttardómarans hafi verið fólgið í því að komast að niðurstöðu sem var fyrirsvarsmanni kæranda ekki að skapi, en hér talar bersýnilega maður sem er vanur að fá vilja sínum framgengt. Það er augljóst að hæstaréttardómarinn gerðist ekki brotlegur við lög með störfum sínum. Öðru máli kann að gegna með fyrirsvarsmann kæranda, en samkvæmt 1. mgr. 148. gr. laga nr. 19/1940 varðar það allt að 10 ára fangelsi að koma því til leiðar með rangri kæru að saklaus maður verði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað. Það er sjálfsagt og þarft að ræða störf og starfshætti dómstóla með gagnrýnum hætti. Öðru máli gegnir um skipulagða aðför að mannorði nafngreindra dómara með tilhæfulausum kærum um brot í opinberu starfi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk skrifar Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira
Ríkissaksóknari hefur haft til meðferðar kærur á hendur Benedikt Bogasyni og Ingveldi Einarsdóttur hæstaréttardómurum fyrir brot í opinberu starfi. Kæran á hendur Benedikt Bogasyni virðist eingöngu byggð á frásögn „vitnis“ sem er í þjónustu kæranda og virðist þiggja greiðslur fyrir. Það eina sem kann að vera rétt í frásögn vitnisins er að sérstakur saksóknari lét sækja endurrit hlerunarúrskurðar hjá kæranda á heimili Benedikts. Kæran er því með öllu tilefnislaus og til marks um það virðist sem enginn af lögmönnum kæranda hafi treyst sér til þess að leggja nafn sitt við kæruna. Kærandi undirritaði kæruna því sjálfur. Það eina áhugaverða sem eftir stendur í þessu kærumáli er að „vitnið“ eða jafnvel kærandi sjálfur upplýsi hversu háar fjárhæðir „vitnið“ hefur þegið fyrir þjónustu sína í þágu kæranda. Kæran á hendur Ingveldi Einarsdóttir er jafn sérkennileg, en efni kærunnar var kynnt á forsíðu Fréttablaðsins áður en kæran barst ríkissaksóknara. Fyrirsvarsmaður kæranda lýsti því strax yfir í fjölmiðlum að lögbrot hæstaréttardómarans hafi verið augljóst og sagði svo: „Við teljum að dómari hafi komist að rangri niðurstöðu og að það hafi verið brotin lög á okkur.“ Tilvitnuð ummæli verða ekki skilin öðruvísi en svo að lögbrot hæstaréttardómarans hafi verið fólgið í því að komast að niðurstöðu sem var fyrirsvarsmanni kæranda ekki að skapi, en hér talar bersýnilega maður sem er vanur að fá vilja sínum framgengt. Það er augljóst að hæstaréttardómarinn gerðist ekki brotlegur við lög með störfum sínum. Öðru máli kann að gegna með fyrirsvarsmann kæranda, en samkvæmt 1. mgr. 148. gr. laga nr. 19/1940 varðar það allt að 10 ára fangelsi að koma því til leiðar með rangri kæru að saklaus maður verði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað. Það er sjálfsagt og þarft að ræða störf og starfshætti dómstóla með gagnrýnum hætti. Öðru máli gegnir um skipulagða aðför að mannorði nafngreindra dómara með tilhæfulausum kærum um brot í opinberu starfi.
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar