Lendir skulu lög setja Þröstur Ólafsson skrifar 30. september 2014 00:00 Umræður um landbúnað á Íslandi hafa löngum verið óhægar. Því veldur tilfinningarík afstaða þjóðarinnar til sveitanna. Upprunnin erum við flest úr bændastétt, við höfum verið í sveit eða búið í sveit, auk þess sem okkur þykir afar vænt um landið okkar. Þessi tilfinningatengsl eru ekki til staðar gagnvart nokkurri annarri starfsstétt. Þess vegna eigum við erfitt með að gera greinarmun á landbúnaðarkerfinu og bændum. Gagnrýni á kerfið er tekin sem árás á bændur. Þar með er umræðunni lokið. Annað sem gerir umræðuna örðuga er hve kerfið er tyrfið. Aðeins sérfróðir kunna full skil á gangverki þess. Þeim er innanhandar að finna veikleika í málflutningi annarra. Margar forsendur þess eru fljótandi og því auðvelt að benda á að tiltekinn útreikningur sé á misskilningi byggður. En landbúnaður er atvinnugrein og við verðum að geta rætt starfsskilyrði hennar af skynsamlegu viti. Það er oft stutt úr særðu rökþroti í ofstopa. Það er ekki langt síðan forystumaður úr bændastétt krafðist þess af háskólarektor að prófessor, sem lagði út af opinberum tölum um landbúnað, yrði rekinn.Hækkandi fjárframlög Gangverk landbúnaðarins hvílir á tveimur heimildarlögum. Önnur fjalla um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum en hin, búnaðarlögin, um framlög ríkisins til ýmissa verkefna. Á grundvelli þessara heimildarlaga semja ráðherrar við Bændasamtökin. Íslenskri stjórnsýslu í landbúnaðarmálum hefur vísvitandi ætíð verið haldið svo veikri að samtök bænda sáu bæði um að móta innihald samninganna og hafa eftirlit með framkvæmd þeirra. Stundum var sagt að Bændasamtökin semdu við sig sjálf. Það var því að vonum að ný ríkisstjórn drægi landbúnaðinn út úr stóru sameinuðu atvinnuvegaráðuneyti, til fyrra horfs. Innan öflugra ráðuneytis hefði sjálfsafgreiðslan getað orðið örðugri. Samningarnir eru gjarnan til nokkurra ára og taka oftast árlegum hækkunum auk vísitölutryggingar. Þegar fjárlagafrumvarp er samið eru niðurstöðutölur úr samningunum settar þar inn og Alþingi er áhorfandi. Mjög hagkvæmt fyrirkomulag. Búvörusamningarnir eru því aldrei ræddir á Alþingi og ég hygg að fæstir þingmanna hafi lesið þá. Þannig er hækkun framlaga til verkefna fram til 2017 árlega um og yfir 4% auk verðlagsbóta. Á meðan heilbrigðiskerfið þarf að draga verulega saman seglin, Landspítalinn hrópar á hjálp, framhaldsskólar eru skornir niður, löggæslan er í fjárþröng og dregið er úr velferð þjóðarinnar, þurfa bændur ekki að óttast samdrátt, þökk sé samningum sem gerðir voru fyrir einhverjum árum. Þeir eru undanþegnir aðhaldsaðgerðum og niðurskurði. Hugtakið hagræðingarkrafa er óþekkt þar á bæjum. „ …þó ekki hóffjaðrir.“ Þegar við sem sátum í fyrstu skattsvikanefndinni (1983-1984) kölluðum Sigurbjörn heitinn Þorbjörnsson, þáverandi ríkisskattstjóra, á fund okkar og spurðum hann um skattalögin íslensku, hvort í þau vantaði eitthvert mikilvægt ákvæði, og vorum þá með hugann við verkefni nefndarinnar, svaraði hann: „Já, fyrsta grein skattslaganna hefur aldrei verið skrifuð. Hún ætti að hljóða: Þrátt fyrir ákvæði laga þessara, skulu þau ekki gilda um bændur.“ Þó í orðum þessum lægi lúmsk kímni, þá segja þau mikið um stöðu bóndans í íslensku lagaumhverfi. Lög Íslands voru meira og minna sniðin að ýtrustu hagsmunum bændastéttarinnar. Skattalögin, svo dæmi sé tekið, voru það haganlega úr garði gerð, og án þess að mikið bæri á, að bændur sluppu að mestu. Það er t.d. afar snúið að finna hver séu laun bænda. Hvaða tala sem ekki er hagsmunagæslumönnum að skapi, er skotin í kaf með öðrum og „raunhæfari“ forsendum. Þá þekkjum við dæmið um vaskleysið á sölu laxveiðileyfa. Einhver hefur giskað á þar sé um 300-400 m.kr. að ræða. Afurðastöðvarnar eru undanþegnar samkeppnislögum, og þannig mætti halda áfram.Lendir og landleysingjar En hvernig stendur á því að ein stétt nær slíku tangarhaldi á einu þjóðfélagi? Við teljum okkur þó lifa í upplýstu, vestrænu jafnréttissamfélagi. Saga Íslands svarar því. Frá upphafi Íslandsbyggðar voru það stórbændur með aðstoð kirkjunnar manna, sem settu lög og umferðarreglur samfélagsins. Kúgun vinnuhjúa og ánauð leiguliða var megineinkenni gamla bændasamfélagsins. Lög bönnuðu fasta búsetu við sjávarsíðuna og komu þannig í veg fyrir þéttbýlismyndun og samkeppni um vinnuafl. Barátta bænda gegn þurrabúðarfólki stóð allt fram undir aldamótin 1900. Þegar ekki var lengur hægt að sporna við þéttbýlismyndun, var samt hægt að skerða rétt þessa fólks. Það átti ekkert land og var því léttvægara en landeigendur. Með því að gera vægi atkvæða þeirra til þingkosninga minna en sveitafólks gátu efnabændur haldið áfram að móta meginlínur þjóðfélagsins. Þar skiptu viðskipta- og framleiðsluskilyrði landbúnaðarins mestu. Um leið og kræla tók á frjálslyndum sjónarmiðum í landbúnaðarmálum var brugðist við af festu og sett sérlög. Engin önnur atvinnugrein nýtur þeirra forréttinda að búa við sérlög um alla sína starfsemi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar orðið einelti er gjaldfellt – Til fylgjenda Katrínar Jakobsdóttur Kolbrá Höskuldsdóttir Skoðun Þegar ég heyri nafnið Katrín Jakobsdóttir Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Halla Hrund - ein af okkur Hjálmar Gíslason Skoðun Nú vandast valið Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Að sameina frekar en sundra Fríða Björk Ingvarsdóttir Skoðun Hvaða eiginleika þarf forseti að hafa? Hildur Eir Bolladóttir Skoðun Halldór 18.05.2024 Halldór Í hjarta sínu græn, en varla í reynd Ole Anton Bieltvedt Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun Halla Hrund eða Katrín? Reynir Böðvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Tímabær orð Unnar Arndísardóttur um afstæði barneigna Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Í hjarta sínu græn, en varla í reynd Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Halla Hrund - ein af okkur Hjálmar Gíslason skrifar Skoðun Að sameina frekar en sundra Fríða Björk Ingvarsdóttir skrifar Skoðun Þegar orðið einelti er gjaldfellt – Til fylgjenda Katrínar Jakobsdóttur Kolbrá Höskuldsdóttir skrifar Skoðun Hvaða eiginleika þarf forseti að hafa? Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Þegar ég heyri nafnið Katrín Jakobsdóttir Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Í framhaldi af viðtali við Helgu Þórisdóttur Kári Stefánsson skrifar Skoðun Góð gildi og staðfesta Höllu Hrundar Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Halla Hrund eða Katrín? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Til áréttingar Kári Stefánsson skrifar Skoðun Kynhluthlaust mál, máltilfinning og forsetaframboð Höskuldur Þráinsson skrifar Skoðun Er klassískt frjálslyndi orðið að jaðarskoðun? Kári Allansson skrifar Skoðun Forseti Íslands veifaði mér Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Ákall til framtíðar: Nám í félagsráðgjöf! Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Lexía lærð á hálfum degi Stefanía Arnardóttir skrifar Skoðun Ég kýs Helgu Þórisdóttur Gerður Rún Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar Skoðun Formaður húsfélagsins Guðmundur Andri Thorsson skrifar Skoðun Opið bréf til landsliðsmanna Íslands í blaki Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Kosningum frestað Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mesti stjórnmálamaðurinn? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson skrifar Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Nýtt sveitarfélag Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stafrænn ójöfnuður á upplýsingaöld Stella Samúelsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Sjá meira
Þegar orðið einelti er gjaldfellt – Til fylgjenda Katrínar Jakobsdóttur Kolbrá Höskuldsdóttir Skoðun
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Þegar orðið einelti er gjaldfellt – Til fylgjenda Katrínar Jakobsdóttur Kolbrá Höskuldsdóttir skrifar
Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar
Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar
Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar
Þegar orðið einelti er gjaldfellt – Til fylgjenda Katrínar Jakobsdóttur Kolbrá Höskuldsdóttir Skoðun
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun