„Spurðu mig bara hvernig ég héldi jafnvægi“ Baldvin Þormóðsson skrifar 17. júlí 2014 15:45 Rós ætlar ekki að hætta í námi þrátt fyrir samninginn. vísir/arnþór „
Ég var í verslunarmiðstöð þegar einhver kona kom upp að mér og talaði flæmsku. Ég skildi ekkert fyrr en hún skipti yfir í ensku og vildi fá mig á skrá,“ segir Rós Kristjánsdóttir en hún var að heimsækja móður sína í Brussel í seinustu viku þegar hún skrifaði nýverið undir samning hjá umboðsstofunni Dominique Models. „Fyrst fór ég bara að skoða þessa stofu og leist vel á það sem þau voru að gera,“ segir Rós sem fór síðan á fund til þeirra þar sem hún var mæld og send í myndatöku. „Þau vildu fá mig í hæla á myndinni og spurðu mig hvaða stærð ég væri, síðan hlógu þau öll þegar ég sagðist vera stærð 38,“ segir fyrirsætan sem er tæpir 180 sentímetrar á hæð. „Þau spurðu mig bara hvernig ég héldi jafnvægi.“ Rós stundar nám í mannfræði við Háskóla Íslands og mun halda því áfram í fjarnámi í vetur. „Ég tek örugglega nokkra mánuði úti í einu og kem síðan heim inn á milli en það er ekkert komið á hreint.“ Móðir Rósar, Sigrún Jónsdóttir, starfar hjá fastanefnd Íslands í Brussel og hefur Rós íhugað að feta í fótspor hennar. „Ég hef alltaf haft áhuga á stjórnmálafræði og gæti hugsað mér að fara í það nám eftir mannfræðina,“ segir fyrirsætan sem ætlar þó fyrst að sjá hvernig gengur hjá nýju stofunni og í fjarnáminu. „Þetta getur farið á svo marga mismunandi vegu. Það er allt opið.“
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Sahara Ray látin Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Fleiri fréttir Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Sjá meira