Lífið

Skilin en taka upp lag saman

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikkonan Nikki Reed og tónlistarmaðurinn Paul McDonald hittust í hljóðveri fyrir stuttu til að taka upp lag saman.

Nikki og Paul, sem er hvað þekktastur fyrir að taka þátt í American Idol, byrjuðu að deita vorið 2011. Þau trúlofuðu sig stuttu seinna og giftu sig í október sama ár. Þau tilkynntu að þau væru skilin að borði og sæng í mars á þessu ári og í maí sótti Nikki um skilnað.

Nikki birti mynd af þeim Paul í hljóðveri á Who Say-síðu sinni eftir helgina og virðast þau enn halda góðum vinskap.

Skrifaði Nikki við myndina að hún ætti heima í flugvélum þessa dagana en hefði fundið tíma til að taka upp lagið I Can't Say So með fyrrverandi eiginmanni sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.