Eiga von á barni og safna fyrir plötu Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 15. ágúst 2014 09:00 Sigga Eyrún og Kalli tóku þátt í Sönvakeppni sjónvarpsins og lentu í öðru sæti eftir æsispennandi úrslitakeppni gegn Pollapönkurum. vísir/pjetur
Sigga Eyrún Friðriksdóttir á von á barni með sambýlismanni sínum Karli Olgeirssyni. Barnið var þó ekki komið undir þegar hún tók þátt í söngvakeppni Sjónvarpsins í febrúar síðastliðnum, með laginu Lífið kviknar á ný, sem Karl samdi. Parið á von á barninu í desember og er þetta þeirra fyrsta barn saman en fyrir eiga þau bæði eitt barn. Það er þó nóg að gera hjá þeim þar til litla krílið mætir á svæðið, því fyrir utan flutninga þessa dagana safna þau fyrir fyrstu sólóplötu Siggu Eyrúnar. „Við erum að safna fyrir framleiðslukostnaði og launum hljóðfæraleikarana,“ segir Sigga Eyrún. „Söfnunin er á Karolinafund og nú er eingöngu vika til stefnu." Á Karolinafund er hægt að kaupa geisladiskinn fyrirfram, miða á útgáfutónleika, fengið einkatónleika parsins heima í stofu eða heimaprjónaða ullarvettlinga- og peysur. „Mamma er formaður Handprjónasambandsins og þetta er gert í samvinnu við þau. Ég hef unnið verkefni fyrir þau og fæ lopapeysur í staðinn. Fólk getur því keypt gæðapeysur og peningurinn rennur beint í plötuna." Sigga Eyrún segir að í upphafi hafi platan átt að vera ábreiðuplata, þar sem þau Kalli myndu taka upp þeirra uppáhaldslög. „Svo fór ég að róta í tónlistinni hans Kalla og hann á svo mikið af fallegum lögum. Platan endar því á að vera með frumsamin lög til helminga við cover-lög."
Mest lesið Dolly Parton látin Lífið „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Stjörnum prýtt svitapartý Lífið Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Lífið Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Bíó og sjónvarp Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Tónlist Harington tekur við af uppteknum Hoult Bíó og sjónvarp Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Lífið Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Sjá meira