Skoðun

Að ganga erinda náttúrunnar

Ragnheiður Elín Árnadóttir skrifar
Ögmundur Jónasson ritaði pistil í gær hér í Fréttablaðið um frumvarp ríkisstjórnarinnar um náttúrupassa. Andstaða Ögmundar kom reyndar ekki á óvart, hann hefur lagst eindregið gegn allri gjaldtöku inn á ferðamannastaði og því skyldi annað vera uppi á teningnum nú?

Þessi afstaða Ögmundar væri kannski skiljanleg ef ekki væri fyrir þá staðreynd að Ögmundur var einn þeirra sem samþykktu frumvarp Svandísar Svavarsdóttur, fyrrverandi umhverfisráðherra, til náttúruverndarlaga á síðasta ári. Þar segir í 92. grein: „Rekstraraðili náttúruverndarsvæðis getur enn fremur ákveðið sérstakt gjald fyrir aðgang að svæðinu ef spjöll hafa orðið af völdum ferðamanna eða hætta er á slíkum spjöllum og skal tekjum af því varið til eftirlits, lagfæringar og uppbyggingar svæðisins eða aðkomu að því.“ Með öðrum orðum, Ögmundur studdi frumvarp sem heimilaði að rukkað yrði fyrir aðgang t.a.m. að Þingvöllum, sem hann hefur sérstaklega gert að umtalsefni.

Ögmundi er auðvitað frjálst að skipta um skoðun síðan hann samþykkti þetta lagaákvæði. Þessi heimild hefur reyndar verið í lögum allt frá árinu 1999 og því heimilt samkvæmt lögum að takmarka aðgang að svæðum með gjaldtöku, ekki bara í umræddum náttúruverndarlögum heldur einnig í þremur öðrum lagabálkum. En varla skiptir það Ögmund þá máli að heimildin sé nýtt með náttúrupassa frekar en í innheimtuhliði við innganginn að Þingvöllum?

Það kom fátt á óvart í grein Ögmundar – en það sem er vont að sitja undir eru ávirðingar hans um að ég sé að láta eftir vilja einstakra fyrirtækja eða hagsmunaaðila. Ögmundur hefði þá átt að nefna björgunarsveitir landsins í þeirri upptalningu, en með frumvarpinu er gert ráð fyrir beinum fjárframlögum til þeirra sem fá í síauknum mæli verkefni við björgun ferðafólks samhliða örum vexti ferðaþjónustunnar. Því fer fjarri að gengið sé erinda ákveðinna hópa. Náttúrupassinn gerir það einmitt að verkum að hann leggst ekki á einn afmarkaðan anga ferðaþjónustunnar, heldur aðeins á þá einstaklinga sem kjósa að heimsækja vinsæla ferðamannastaði. Það eina sem hefur vakað fyrir mér frá því málið kom upp er að vernda náttúruna – „vöruna“ sem um 80% erlendra ferðamanna segjast koma til að upplifa.

Ég ætla ekki að fara fram á margt við Ögmund í þessari umræðu, en bið hann þó um það lítilræði að halda sig við málefnin og að tala út frá staðreyndum. Þannig gætum við jafnvel talað okkur niður á sameiginlega lausn.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×