Siðlaus stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík Björn Grétar Sveinsson skrifar 5. desember 2014 07:00 Fyrr á þessu ári var framkvæmdastjóra Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) sagt upp störfum án skýringa. Sterkar líkur hafa verið leiddar að því að raunverulegar ástæður uppsagnarinnar væru athugasemdir framkvæmdastjórans við óeðlilega háar greiðslur til eiginmanns gjaldkera stjórnarinnar, vegna vikulegs tónlistarflutnings hans á dansleikjum félagsins. Það er athyglisvert að þessi uppsögn er ákveðin hálfum mánuði eftir aðalfund félagsins en á fundinum var hvergi minnst á að uppsögn framkvæmdastjóra stæði til eða væri til skoðunar. Framkvæmdastjórinn var þá nýorðinn 60 ára og félagsmaður í FEB, sem á að öllu eðlilegu að standa vörð um hagsmuni fólks á þessum aldri, en ekki valda því tjóni.Félagsfundur um uppsögn Í lögum félagsins segir: „Fari 30 félagsmenn fram á það er stjórn félagsins skylt að halda félagsfund.“ Hátt í 300 félagsmenn kröfðust þess að haldinn yrði almennur félagsfundur þar sem stjórnin myndi útskýra ástæður uppsagnarinnar. Var félagsfundur haldinn hinn 14. apríl í vor og var einn fjölmennasti félagsfundur sem haldinn hefur verið í samkomusal félagsins. Fundarstjóri var tilnefndur af stjórn félagsins. Á fundinum var samþykkt nær einróma áskorun til stjórnar félagsins að draga uppsögn framkvæmdastjórans til baka, enda komu engar haldbærar skýringar fram um ástæður uppsagnarinnar. Einnig lá fyrir fundinum tillaga um vantraust á stjórn félagsins. Eftir langar og heitar umræður um tillöguna virtist öruggt að hún yrði sömuleiðis samþykkt með miklum meirihluta atkvæða fundarmanna. Fundarstjórinn bjargaði stjórninni þá fyrir horn og neitaði að bera vantrauststillöguna undir atkvæði. Hann úrskurðaði að til að bera upp vantrauststillögu á stjórn þyrfti að boða til nýs fundar. Fundargerð félagsfundarins hefur enn ekki birst á vefsíðu félagsins og stjórnin ekki gengist við uppsögn framkvæmdastjórans. Engin tilkynning hefur borist félagsmönnum um uppsögnina. Fundargerð frá félagsfundinum í apríl hefur ekki komið fram, nú 7 mánuðum síðar. Það er farið með þessa ákvörðun stjórnarinnar eins og mannsmorð sem minnir helst á stjórnarhætti í Kína eða Norður-Kóreu, þar sem reynt er að þegja óþægilegar og vondar ákvarðanir í hel. Stjórn frjálsra félagasamtaka eldri borgara á Íslandi árið 2014 fer eins að; tekur siðlausa geðþóttaákvörðun um uppsögn framkvæmdastjóra félagsins og reynir svo að láta líta út fyrir að ekkert hafi gerst.Krefjast nýs félagsfundar Í september sl. fóru svo rúmlega 40 félagsmenn fram á, með vísan til orða fundarstjóra á félagsfundi sl. vor, að nýr félagsfundur yrði haldinn og að á dagskrá yrði tillaga um vantraust á stjórn félagsins, m.a. fyrir að hafa á engan hátt sinnt eða orðið við kröfu hins fjölmenna félagsfundar í apríl eða að stjórnin hygðist hlusta á eða fara að lýðræðislegum kröfum félagsmanna. Þetta var ekki bænaskrá eins og Íslendingar sendu Danakonungum á sinni tíð. Þetta var krafa félagsmanna í lýðræðislegum samökum með vísan til laga félagsins. Stjórn félagsins hefur engin viðbrögð sýnt við þessari kröfu, nú tveimur mánuðum eftir að hún var afhent og brýtur þar með ótvírætt lög eigin félags.Óheiðarleiki formanns og gjaldkera Það er athyglisvert að gjaldkeri stjórnarinnar er einnig varaformaður í stéttarfélagi innan BHM og formaðurinn er fyrrum formaður starfsmannafélagsins Sóknar. Sem varamaður á Alþingi í stuttan tíma fyrir alllöngu var hún m.a. meðflutningsmaður lagafrumvarps um skyldur atvinnurekenda til að rökstyðja uppsagnir. Hún hefur sjálf ekki getað rökstutt þá uppsögn sem hún undirritaði hjá Félagi eldri borgara sl. vor. Stundum er sagt að athafnir manna séu siðlausar en löglegar. Athafnir stjórnar FEB eru siðlausar og ólöglegar. Því miður er hræsnin og þöggunin allsráðandi í Félagi eldri borgara í Reykjavík þessa dagana. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar