Vísar skorti á kæruferli til Umboðsmanns Alþingis Óli Kristján Ármannsson skrifar 28. nóvember 2014 07:00 Seðlabanki Íslands fer með umsjón gjaldeyrishafta og úrskurðar í málum tengdum undanþágum frá höftum. Fréttablaðið/Stefán
Danski fjárfestirinn Lars Grundtvig ætlar að kæra ti Umboðsmanns Alþingis verklag tengt undanþágum frá gjaldeyrishöftum. Fram kemur í bréfi Grundtvigs til fjármálaráðherra undir lok október að hann furði sig á svari ráðuneytisins um að ekki sé hægt að kæra þangað ákvörðun Seðlabankans að hafna umsókn Grundtvigs um undanþágu frá gjaldeyrishöftum. Áður hefur komið fram að Grundtvig segist þurfa undanþágu vegna breytinga á erfðalögum í Danmörku. „Í þessari stöðu verður kvörtun send Umboðsmanni. Síðan kemur í ljós hvor þjóð þinni er stjórnað af lögum eður ei,“ segir Grundtvig í bréfi sínu til fjármálaráðherra.Hann bendir á að ekki sæmi þjóðinni að „halda áfram að stela eignum“ annara. Það komi síðar í bakið á mönnum. „Land þitt gerir sitt ítrasta til að tapa vinum sínum.“ Þegar fimm mánuðir voru liðnir frá því að Grundtvig sótti um undanþágu, í janúar síðstliðnum, skrifaði hann Seðlabankastjóra bréf með samantekt á máli sínu. Þar segist hann vonast eftir svörum fljótlega. Hinn valkosturinn sé að leita svara í gegn um þingmann sinn á Evrópuþinginu. Það sé hins vegar neyðarúrræði.Morten Løkkegaard, Evrópuþingmaður danska hægriflokksins Venstre, lagði fram fyrirspurn á þinginu 19. febrúar. Þá spurði hann framkvæmdastjórn ESB um áhrif gjaldeyrishaftanna á EES-samninginn og hvort hún hyggðist gera breytingar á samningnum vegna brota Íslands á ákvæði um frjálst flæði fjármagns. Eins spurði hann hvort framkvæmdastjórnin teldi sig gæta hagsmuna fyrirtækja innan ESB sem hefðu þá verið föst með fé á Íslandi í hálfan áratug vegna haftanna. Í svari framkvæmdastjórnarinnar í apríl eru höftin enn sögð samrýmast EES-samningnum. Draga ætti úr þeim hægt og rólega.
Tengdar fréttir Gjaldeyrishöftin kalla ekki á breytingar á EES Engin ástæða er til þess að gera breytingar á samninginn um evrópska efnahagssvæðið (EES) þrátt fyrir að Ísland hafi ekki uppfyllt eina af meginstoðum samningsins frá því gjaldeyrishöftum var komið á, að mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB). 24. apríl 2014 06:30 Spyr framkvæmdastjórn ESB um gjaldeyrishöft Íslands Danskur þingmaður á Evrópuþinginu hefur lagt spurningar um áhrif íslensku gjaldeyrishaftanna á EES-samninginn fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. 14. mars 2014 06:30 EES gæti lent í frosti að hluta Ísland rekur lestina í innleiðingu EES-löggjafar. Fjármagnsflutningar innan EES eru ekki frjálsir líkt og samningurinn gerir ráð fyrir og ekki hafa verið gerðar breytingar á stjórnarskrá sem þarf til að innleiða eftirlit með fjármálastofnunum. Fjármálaráð 18. mars 2014 07:00 Skilið okkur peningunum! Opið bréf til Más Guðmundssonar seðlabankastjóra frá Lars Grundtvig fjárfesti, föstum innan gjaldeyrishafta. 26. nóvember 2014 07:00 Staða sem minnir um margt á þjófnað Seðlabankinn hefur hafnað beiðni danska fjárfestisins Lars Grundtvig um undanþágu frá fjármagnshöftum. Hann telur bankann í blekkingarleik og aðgang Íslands að innri markaði Evrópu í hættu. 26. nóvember 2014 07:00 Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira
Gjaldeyrishöftin kalla ekki á breytingar á EES Engin ástæða er til þess að gera breytingar á samninginn um evrópska efnahagssvæðið (EES) þrátt fyrir að Ísland hafi ekki uppfyllt eina af meginstoðum samningsins frá því gjaldeyrishöftum var komið á, að mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB). 24. apríl 2014 06:30
Spyr framkvæmdastjórn ESB um gjaldeyrishöft Íslands Danskur þingmaður á Evrópuþinginu hefur lagt spurningar um áhrif íslensku gjaldeyrishaftanna á EES-samninginn fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. 14. mars 2014 06:30
EES gæti lent í frosti að hluta Ísland rekur lestina í innleiðingu EES-löggjafar. Fjármagnsflutningar innan EES eru ekki frjálsir líkt og samningurinn gerir ráð fyrir og ekki hafa verið gerðar breytingar á stjórnarskrá sem þarf til að innleiða eftirlit með fjármálastofnunum. Fjármálaráð 18. mars 2014 07:00
Skilið okkur peningunum! Opið bréf til Más Guðmundssonar seðlabankastjóra frá Lars Grundtvig fjárfesti, föstum innan gjaldeyrishafta. 26. nóvember 2014 07:00
Staða sem minnir um margt á þjófnað Seðlabankinn hefur hafnað beiðni danska fjárfestisins Lars Grundtvig um undanþágu frá fjármagnshöftum. Hann telur bankann í blekkingarleik og aðgang Íslands að innri markaði Evrópu í hættu. 26. nóvember 2014 07:00