Hrista upp í frægustu ástarsögu heims Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 30. september 2014 09:15 Aðalleikkonurnar Agnes Gísladóttir og Rannveig Eva Snorradóttir fara með hlutverk elskendanna. „
Við vildum gera eitthvað nýtt og breyta þessum týpíska söguþræði sem allir þekkja. Þannig að í stað þess að hafa Rómeó og Júlíu þá verða tvær stelpur, þær Rómeyja og Júlía,“ segir Bára Lind Þórarinsdóttir í Listafélagi Verzlunarskóla Íslands. Listafélagið setur í vetur upp nýja útgáfu af einni frægustu ástarsögu heims, Shakespeare-leikritinu Rómeó og Júlíu. Með aðalhlutverkin fara þær Agnes Gísladóttir sem leikur Rómeyju og Rannveig Eva Snorradóttir sem fer með hlutverk Júlíu. Eins og áður sagði verða aðalpersónurnar tvær stelpur, en ekki strákur og stelpa eins og hefur verið í þessu verki. Formaður Listafélagsins, Rán Ísold Eysteinsdóttir, segir ástæðurnar fyrir því að ákveðið var að hafa tvær stúlkur í aðalhlutverkum margar. „Við erum nýbúnar að stofna femínistafélag hér í skólanum og í fyrsta sinn í sögu skólans eru stelpur í meirihluta í stjórn. Okkur fannst þetta líka viðeigandi vegna þess að þetta leikrit var áður bara leikið af karlmönnum, en konur máttu ekki leika á þeim tíma,“ segir Rán. Bára bætir við að vegna togstreitunnar á milli fjölskyldnanna tveggja í verkinu verði þetta áhugaverður vinkill. „Þetta gerir spennuna á milli þeirra enn meiri og það verður skemmtilegt að sjá hvernig það þróast,“ segir hún. Sagan verður sett í nútímabúning, en verkið verður frekar tímalaust. Búningar eru enn í vinnslu, en hvíti liturinn mun ráða ríkjum í búningum og sviðsmynd. „Handritinu var töluvert breytt, sagan heldur sér alveg en við vildum taka út rímurnar, nema á þeim stöðum þar sem það passar verkinu betur. Samræður Rómeyju og Júlíu eru til dæmis alltaf í bundnu máli. Okkur fannst of þungt, bæði fyrir áhorfendur og leikara, að hafa textann svona þungan. Það passaði ekki alveg fyrir menntaskólaleikrit,“ segir Bára, en þau fengu góðfúslegt leyfi til þess að nota handrit í þýðingu Hallgríms Helgasonar. „Það fengu allir sem taka þátt í þessu það verkefni að lesa handritið í gegn og reyna að skilja það. Núna erum við á fullu að kryfja til mergjar hvað öll orðin þýða, reyna að skilja algjörlega hvað þau eru að segja og endursegja það svo með okkar orðum þannig að allir skilji,“ segir Bára. Leikstjóri verksins er Bjarni Snæbjörnsson, leikari og leiklistarkennari. „Núna eru æfingarnar bara að fara á fullt hjá okkur, en við stefnum að því að frumsýna 7. nóvember fyrir nemendur Verzlunarskólans,“ segir Bára.Sala á almennar sýningar verður á miði.is og verður nánar auglýst síðar.
Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Fleiri fréttir Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Sjá meira