Lífið

Trúir ekki orðum bara gjörðum

Manúela Ósk Harðardóttir er að hefja sitt annað ár í fatahönnun við LHÍ.
Manúela Ósk Harðardóttir er að hefja sitt annað ár í fatahönnun við LHÍ.
1.Þegar ég var ung hélt ég að… ég kæmist léttilega gegnum lífið án snjallsíma.

2.Núna veit ég að það… var bara einhver hræðilegur misskilningur.



3.Ég mun eflaust aldrei skilja… hvers vegna blár Ópal var tekinn af markaði.



4.Ég hef engan sérstakan áhuga á… eldamennsku – en bakstur er allt annað mál.

5.Karlmenn eru… ekki allir eins.



6.Ég hef lært að… maður á alls ekki að trúa orðum – bara gjörðum.



7.Ég fæ samviskubit þegar…ég gleymi að svara tölvupósti – sem gerist óþolandi oft.

8.Ég slekk á sjónvarpinu… þegar börnin mín gleyma því þar sem ég kveiki aldrei á því sjálf.



9.Um þessar mundir er ég upptekin af því að… búa mig undir veturinn í LHÍ og skipuleggja spennandi tíma sem fram undan eru hjá KRÓM.



10.Ég vildi óska að fleiri vissu af… mikilvægi þess að hafa aðgát í nærveru sálar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.