„Ísland er náttúrulega paradís ljósmyndarans“ Baldvin Þormóðsson skrifar 21. ágúst 2014 10:13 Xárene segir veðrið á Íslandi breytast á fimm mínútna fresti. vísir/gva „
Fólk áttar sig stundum ekki á því hvað veðrið hefur gríðarleg áhrif á líðan þess,“ segir listakonan Xárene Eskandar en hún opnar sýningu sína Iceland Weather Reports í dag klukkan 16 í Hannesarholti. „Þetta byrjaði sem verkefni í Los Angeles þar sem það er alltaf sól og sama veðrið sem hefur líka áhrif á þig, þó að það breytist ekkert,“ segir Xárene. „Á Íslandi er það alveg öfugt, það breytist alveg á fimm mínútna fresti eins og þið segið.“ Sýningin samanstendur af ljósmyndum og vídeóverkum sem Xárene hefur tekið á mismunandi stöðum Íslands og ljóðrænum textabútum sem hún skrifar um líðan sína hverju sinni. „Ég reyni að fanga kjarna hvers staðar fyrir sig,“ segir listakonan. „Ég reyni að skrifa þannig að hver sem les textann geti tengt við hann, þrátt fyrir að hafa ekki verið á staðnum akkúrat þetta augnablik þá skilji lesandinn samt hvað ég á við.“ Þetta ber þó ekki að skilja þannig að listakonan skrifi nákvæma veðurlýsingu í textabrotunum. „Þú færð vísbendingar en þetta snýst meira um hvernig veðrið lætur manni líða,“ segir Xárene. „Ég reyni að tala um önnur áhrif en að segja nákvæmlega hitastigið og vindáttina.“ Listakonan segir sýninguna vera mjög persónulega og að hún sé smá stressuð að sýna hana Íslendingum. „Ég vildi ekki vera með þessar týpísku landslagsmyndir af Íslandi,“ segir Xárene. „Ég veit ekkert hvað fólki mun finnast, Ísland er náttúrulega paradís ljósmyndarans.“ Fyrirtækið Samsung hleypur undir bagga með listakonunni en í síðustu viku var hún ekki viss um hvernig hún ætlaði að sýna myndböndin á sýningunni. „Ég var orðin frekar stressuð,“ segir hún og hlær en Samsung lánar Xárene fáein sjónvörp til þess að sýna vídeóverkin en sýningin sjálf verður í Hannesarholti og verður opnuð í dag klukkan 16.
Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Fleiri fréttir Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete Sjá meira