Hámarksstuð í karókígleðinni Baldvin Þormóðsson skrifar 19. ágúst 2014 15:00 Stöllurnar í Hits&Tits segja að í karókí snúist allt um framkomuna. vísir/gva „
Markmiðið er að dreifa karókí-gleðinni,“ segir Ragnheiður Maísól en hún blæs til útikarókís á Menningarnótt ásamt Margréti Erlu Maack. Úti-karókíið verður að erlendri fyrirmynd en þær stöllur sækja innblástur til Mauerparks í Berlín þar sem slíkt karókí á sér stað alla sunnudaga.„Núverandi karókíið okkar er að New York-fyrirmynd,“ segir Margrét Erla. „First we take Manhattan, then we take Berlin,“ syngja þær síðan og hlæja en stöllurnar hafa vakið mikla athygli fyrir lífleg karókí sem þær hafa haldið undir nafninu Hits&Tits.„Við ætlum að láta fólk skrá sig fyrirfram á Facebook-síðunni okkar, þannig að þetta endi ekki á að vera bara við að syngja,“ segir Ragnheiður en karókíið mun fara fram á torginu með úti-taflborðinu á Lækjargötu og hvetja þær fólk til þess að grípa með sér kippu af engiferi eða samloku og fá sér sæti að fylgjast með.„Í Mauerpark er alltaf svo mikil stemning, allir fara að syngja með og fólk rambar eiginlega á þetta,“ segir Margrét Erla og Ragnheiður bætir við að þær verði með ýmsa aukahluti til þess að bæta frammistöðu söngvaranna.„Í Berlín eru þau með pínulitlar græjur, því það snýst í raun allt um framkomu en ekki sönginn,“ segir Ragnheiður.„Við Margrét erum alltaf með allskonar aukahluti til að ná hámarksstuði, við mælum líka með að fólk mæti í búningum og síðan verður margfrægu, heimagerðu konfettí-sprengjurnar á sínum stað,“ segir Ragnheiður en í þetta sinn verða sprengjurnar með náttúrulega sniði.„Mamma er að vinna í blómabúð og hún er að safna laufblöðum og blómum fyrir okkur,“ segir Margrét Erla. „Við viljum ekki sprengja konfétti sem mengar alla Reykjavík.“ Útikarókíið mun eiga sér stað, eins og áður hefur komið fram, á Menningarnótt og hefst gleðin klukkan 16:00 og mun standa til 19:00.
Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Fleiri fréttir Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete Sjá meira