Í hjartastopp fyrir framan fjölskylduna Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 16. ágúst 2014 08:00 Heiða er mikið heilasködduð og algjörlega ósjálfbjarga. Vísir/Arnþór
Hún er ákveðin í því að segja sína sögu ef hún getur hjálpað einhverjum ungum konum sem eru í svipaðri stöðu,“ segir Halldóra Lúðvíksdóttir, móðir Bjarnheiðar Hannesdóttur. Bjarnheiður, eða Heiða eins og hún er ávallt kölluð, fékk hjartastopp í desember árið 2012. Hjartað hennar var stopp í tuttugu mínútur. Henni var vart hugað líf en hún barðist fyrir tilvist sinni á þessari jörð og hafði betur. Hjartastoppið olli miklum heilaskaða og er Heiða algjörlega ósjálfbjarga í dag. Hún getur lítið talað, sér nánast ekki neitt en ástæðu hjartastoppsins má rekja til átröskunar sem hún hafði glímt við frá átján ára aldri. Vegna erfiðleika með tal nýtur hún stuðnings móður sinnar, eiginmanns síns, Snorra Hreiðarssonar, og vinkonu sinnar, Sigrúnar Lilju Guðjónsdóttur, við að segja sína sögu sem víti til varnaðar fyrir aðra. Bjarnheiður prýðir forsíðu helgarblaðs Fréttablaðsins.Fangi í eigin líkama „Hún er heilasködduð eftir tuttugu mínútna hjartastopp og þakin svokölluðum spasma. Það lýsir sér í því að vöðvarnir vinna hver á móti öðrum. Þessu fylgja líka verkir. Hrikalegir verkir. Einu sinni fékk hún verkjakast sem stóð í viku. Það var hræðilegur tími. Heiða er með mjög lélega sjón en rökhugsunin er alveg til staðar. Þetta er enn Heiða. Það er það eina sem skemmdist ekki,” segir Snorri þegar hann lýsir veikindum konu sinnar. „Hún hefur oft lýst þessu eins og hún sé fangi í eigin líkama. Lífið hennar myndi breytast svakalega ef hún gæti til dæmis talað tíu prósentum betur en hún gerir. Núna getur hún lítið tekið þátt í miklum samræðum,“ segir Snorri og Heiða grípur inn í. „Það er glatað.“ „Já, fólk er óöruggt þegar það talar við hana því það skilur hana ekki. Hún finnur það auðvitað. Og þar af leiðandi forðast fólk að tala við hana því það kann ekki að bregðast við í þessum aðstæðum og vill ef til vill ekki gera sig að fífli,“ bætir Snorri við.„Pabbi, skrúfaðu niður rúðurnar!“ Heiða fékk hjartastopp þann 15. desember árið 2012. Þá var hún í bíl með fjölskyldu sinni, Snorra og börnunum þeirra þremur, Dóru Mjöll, þá sex ára, Hannesi Arnari, syni Heiðu og uppeldissyni Snorra, þá ellefu ára, og Önnu Halldóru, dóttur Snorra og uppeldisdóttur Heiðu, þá þrettán ára. Það tekur greinilega á Snorra þegar hann lýsir þessum örlagaríka degi. „Við vorum á leiðinni suður í Voga í afmæli hjá ömmu minni. Heiða fékk skyndilega hjartastopp. Það gerðist á einni sekúndu. Hún sagði við mig að hún væri með verk fyrir brjóstinu og örskotsstund síðar lútir hún höfði. Ég og krakkarnir héldum að hún væri að grínast því að húmorinn hennar hefur alltaf verið svartur. Svo sá ég að hún var með kreppta fingur þannig að ég keyrði strax út í kant og hringdi í 112,“ segir Snorri. „Ég byrjaði á að reisa hana við og opna öndunarveginn. Tvö yngri börnin okkar náttúrulega trylltust og hlupu út úr bílnum. En elsta dóttir okkar hjálpaði mér. „Pabbi, skrúfaðu niður rúðurnar!“ kallaði hún og ég skrúfaði allar rúðurnar niður. Lögreglan var stutt frá þannig að ég var nýbúinn að rífa hana út úr bílnum og ætlaði að fara að byrja hjartahnoð þegar löggan kom og henti mér frá,“ segir Snorri. Í öllum látunum hugsaði Snorri afar skýrt og náði að hringja í föður sinn sem kom um hæl að sækja börnin. Hannes, sonur þeirra, man þó ljóslifandi eftir þessum degi. „Hann segist aldrei gleyma þessum degi meðan hann lifir,“ segir móðir Heiðu.Styrktarsíða Bjarnheiðar á FacebookStyrktarsjóður Heiðu Hannesar á hlaupastyrkur.isHeiða býr yfir gríðarlega miklum styrk og reynir alltaf að líta á jákvæðu hliðarnar.
Tengdar fréttir „Ekki láta aðra segja þér hvernig þú átt að líta út“ Bjarnheiður Hannesdóttir fór í hjartastopp í tuttugu mínútur árið 2012. Hún glímdi við átröskun um árabil og hefur þau skilaboð til annarra sem glíma við sjúkdóminn að útlitið sé ekki neitt á við að vera heilbrigður. 16. ágúst 2014 12:00 Bindur vonir við stofnfrumumeðferð á Indlandi Bjarnheiður Hannesdóttir er heilasködduð og ósjálfbjarga eftir að hún fór í hjartastopp í desember árið 2012. Draumur hennar er að komast í stofnfrumumeðferð á Indlandi og hefur Styrktarsjóður Heiðu Hannesar verið stofnaður til að safna fyrir meðferðinni. 16. ágúst 2014 14:00 Glímdi við átröskun frá átján ára aldri Bjarnheiður Hannesdóttir fékk hjartastopp í desember árið 2012. Aðdrangandinn að hjartastoppinu var langur en Bjarnheiður hafði glímt við átröskun um árabil. 16. ágúst 2014 10:00 Mest lesið Forsetahjónin létu sig ekki vanta Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Þorsteinn og Rós orðin hjón Lífið Fleiri fréttir Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Forsetahjónin létu sig ekki vanta Uppskrift að hinu fullkomna vinkonukvöldi Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Þorsteinn og Rós orðin hjón Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Sjá meira
„Ekki láta aðra segja þér hvernig þú átt að líta út“ Bjarnheiður Hannesdóttir fór í hjartastopp í tuttugu mínútur árið 2012. Hún glímdi við átröskun um árabil og hefur þau skilaboð til annarra sem glíma við sjúkdóminn að útlitið sé ekki neitt á við að vera heilbrigður. 16. ágúst 2014 12:00
Bindur vonir við stofnfrumumeðferð á Indlandi Bjarnheiður Hannesdóttir er heilasködduð og ósjálfbjarga eftir að hún fór í hjartastopp í desember árið 2012. Draumur hennar er að komast í stofnfrumumeðferð á Indlandi og hefur Styrktarsjóður Heiðu Hannesar verið stofnaður til að safna fyrir meðferðinni. 16. ágúst 2014 14:00
Glímdi við átröskun frá átján ára aldri Bjarnheiður Hannesdóttir fékk hjartastopp í desember árið 2012. Aðdrangandinn að hjartastoppinu var langur en Bjarnheiður hafði glímt við átröskun um árabil. 16. ágúst 2014 10:00