Selur bæði blóm og sjálfan sig 14. ágúst 2014 16:00 Blómasalinn þurfti að hugsa sig um áður en hann tók ákvörðunina um að selja líkama sinn.
John Turturro hefur vermt hjörtu margra kvikmyndaáhugamanna í gegnum tíðina með hjartnæmum myndum sem hann skrifar, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í. Nýjasta mynd hans, Fading Gigolo, er þar engin undan- tekning. Myndin skartar úrvalsleikurum á borð við John Turturro sjálfan, Woody Allen, Sharon Stone, Vanessu Paradis, Sofíu Vergara og Liev Schreiber en Turturro leikur hér hinn lítilláta og tiltölulega hlédræga blómasala Fioravante í New York. Dag einn kemur til hans góður vinur, hinn síblanki Murray, og segir honum að hann hafi hitt konu sem sé tilbúin að greiða þúsund Bandaríkjadali fyrir nótt með manni sem er fær um að uppfylla kynlífsdrauma hennar. Murray, sem bráðvantar peninginn, ákveður að biðja Fioravante um að taka að sér verkefnið, fullviss um að hann valdi því auðveldlega. Sjálfur er blómasalinn þó efins um að hann sé rétti maðurinn til að sinna konunni en ákveður að lokum að láta á það reyna, aðallega samt til að hjálpa Murray að rétta úr kútnum fjárhagslega. Í ljós kemur að Fioravante leynir á sér í rekkjubrögðunum og reynist hinn fullkomni elskhugi og opnar það um leið möguleika Murrays á að næla sér í meiri peninga og drífur hann til að afla þeim félögum frekari viðskipta á sama sviði. Athæfið reynist tiltölulega auðvelt og vindur fljótt upp á sig. Málin byrja hins vegar að flækjast þegar Fioravante verður ástfanginn af einum viðskiptavininum, hinni einmana ekkju Avigal. Rómantíska gamanmyndin hefur þegar fengið misjafna dóma gagnrýnenda en hún verður frumsýnd í Sambíóunum 29. ágúst.
Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira