Legg áherslu á að halda voninni og trúa á bata Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. ágúst 2014 12:30 "Það tók mig þrjá daga að losna við óttann með ákveðnum aðferðum,“ segir hann. Fréttablaðið/Stefán „
Læknirinn sagði að venjulegt ferli væri aðgerð, geislameðferð og lyf. Ég stoppaði hann aðeins og sagðist vilja skoða málið og strax eftir þrjá daga var ég byrjaður á 40 daga djúsföstu með ákveðnum efnum í sem eiga að hafa áhrif,“ segir Gunnar L. Friðriksson, nuddari og sjúkraliði, sem greindist með krabbamein á 2. stigi í byrjun júní í sumar. Hann kveðst hafa fengið leiðbeiningar hjá góðu fólki með reynslu af því að bæta ristilvandamál, jafnvel krabbamein, með sérstöku mataræði, og einnig lesið ógrynnin öll af efni á netinu um ýmsar aðferðir. „En ég hef hvergi hitt fólk sem hefur læknast með óhefðbundnu aðferðunum eða fengið svör um hvar það fólk sé. Mig langar að lýsa eftir því,“ segir hann. Meðal þess sem Gunnar hefur fræðst um á síðustu vikum er matarsódameðferð, nálastungur og notkun fæðubótarefna gegn ristilvandamálum. „Það er enginn að láta mig gera neitt – enginn sem segir: „Ekki fara hefðbundnu leiðina,“ tekur hann fram. „Fólk kemur bara með hugmyndir í púkkið en ég útbjó sjálfur þann pakka sem ég er að prófa. Læknirinn minn leyfir mér að ráða ferðinni en leynir því ekki að ef hann fengi að ráða mundi hann skera mig strax. Ég mun hitta lækninn aftur í byrjun september og þá kemur í ljós hvernig staðan er.“ Auk þess að vera nuddari er Gunnar í 40% vinnu á Grund sem sjúkraliði en er í sjúkraleyfi þaðan núna. Svo hefur hann líka kennt nudd og núvitund í Hugleiðslu-og friðarmiðstöðinni. Hann á konu og samanlagt eiga þau sjö börn, þó engin saman. Gunnar kveðst sofa meira en áður og hafa minna starfsþrek. Hann neitar því ekki að mikinn andlegan styrk þurfi til að standa í svona baráttu. „Í þessu ferli legg ég áherslu á að halda voninni og trúa á bata. Ég hef hugleitt mikið síðustu ár, nú hugleiði ég enn meira. Það tók mig þrjá daga að fá óttann í burtu með ákveðnum aðferðum. En ég finn óttann hjá fjölskyldunni og út um allt, líka hjá heilbrigðisstarfsfólki. Ég segi bara: „Slakið á, þetta er mitt líf og minn líkami. Ég verð að díla við vandamálið á minn hátt“,“ segir Gunnar. „Ég vona að einhver sem getur miðlað mér af reynslu sinni hafi samband við mig í gegnum netfangið gunnar@dao.is. Einhver sem hefur læknað sig með svipuðum aðferðum og ég er að reyna, eða látið þær hjálpa hefðbundnu leiðinni.“
Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira