Læknisfræðin er fjölskyldusportið Kristjana Arnarsdóttir skrifar 1. ágúst 2014 10:30 Þau Guðmundur Dagur, Unnar Óli og Berta Guðrún geta eflaust samnýtt skólabækurnar enda öll í sama náminu. MYND/Úr einkasafni „
Það mætti segja að læknisfræðin sé fjölskyldusportið,“ segir Unnar Óli Ólafsson, sem á dögunum fékk þær fregnir að hann hefði komist inn í læknisfræði í HÍ. Það sem meira var, yngri systir hans, Berta Guðrún, komst einnig inn. Allt í allt voru tæplega 300 sem þreyttu prófið og 49 sem komust inn. Unnar segir það létti að hafa komist inn, enda læknisfræði lengi verið draumurinn. Hann segir engan ríg á milli systkinanna. „Við lærðum saman fyrir prófið allt þetta ár og hjálpuðumst að. Það er mjög gaman að við skyldum bæði komast inn og verða bekkjarsystkini næstu árin,“ segir Unnar, sem reiknar fastlega með að þau verði leið hvort á öðru þegar líða tekur á. Unnar Óli og Berta Guðrún eru ekki þau einu í fjölskyldunni sem áttu þann draum að verða læknar. Eldri bróðir þeirra, Guðmundur Dagur, er að fara á sitt fjórða ár í læknisfræðinni og faðir þeirra, Ólafur Ó. Guðmundsson, starfar sem geðlæknir. „Mamma er lyfjafræðingur svo hún lifir af matarboðin. Það sama verður kannski ekki sagt um aðra,“ segir Unnar og hlær, og bætir við að hagstæðast væri ef öll systkinin færu hvert í sína sérgrein. „Það væri skemmtilegt þótt ég sé ekki farinn að hugsa svo langt, enda rétt kominn inn. En það verður skoðað.“
Mest lesið Stjörnum prýtt svita-partý Lífið Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Lífið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Tónlist Léttist við stöðugt pizzuát Lífið Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist Fleiri fréttir Stjörnum prýtt svita-partý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Sjá meira