Lífið

Á meðal þeirra bestu

Yrsa Sigurðardóttir, rithöfundur.
Yrsa Sigurðardóttir, rithöfundur. Vísir/Daníel
Spennusagan Horfðu á mig eftir Yrsu Sigurðardóttur er meðal fimmtíu bestu glæpa- og spennusagna síðustu fimm ára í Bretlandi, að mati Sunday Times.

Horfðu á mig er að sögn blaðsins spennandi og afar hrífandi saga sem nær enn hærri hæðum sökum þess hversu frumlegt sögusviðið er og söguþráðurinn.

Önnur íslensk spennusaga er á sama lista og er það bókin Harðskafi eftir Arnald Indriðason.

„Fyrir svona tíu árum þótti það afrek að komast inn á breska markaðinn og sýnir þetta því hvað við eigum frambærilega höfunda á alþjóðlegum markaði,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti & Veröld.

Þá mælir Sunday Times með annarri bók Yrsu, Brakinu, við lesendur sína þegar mælt er með góðri sumarlesningu á ströndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.