Viltu raunhæfar kjarabætur? Guðjón Sigurbjartsson skrifar 27. janúar 2014 12:00 Fólk vill eðlilega aukinn kaupmátt eftir mörg mögur ár og því kom ekki á óvart að fyrirliggjandi samningar voru almennt ekki samþykktir. Vandamálið er að meiri krónutöluhækkanir gagnast ekki launamönnum því þær auka verðbólgu sem tekur krónutöluhækkanir snarlega til baka og hækka auk þess skuldirnar. Hvað er þá til ráða ef eitthvað? Er hægt að bæta kaupmátt fólks með öðrum hætti? Sú leið er sem betur fer til. Þessi leið gagnast bæði launamönnum og atvinnulífinu almennt þó svo að meirihlutinn á Alþingi fylgi annarri stefnu, svo furðulegt sem það nú er. Raunhæfasta leiðin til að bæta lífskjörin er að opna á tollfrjálsan innflutning matvæla. Markaðsvernd landbúnaðarins nemur um 12 milljörðum króna á ári og styrkir á fjárlögum öðru eins. Markaðsverndin er sú upphæð sem neytendur myndu greiða minna á ári fyrir sömu matvæli ef opið væri á tollfrjálsan innflutning. Þessi aðgerð myndi bæta stöðu meðalheimilis beint um 200.000 kr. á ári eða 4% af útgjöldum. Fyrir þau tekjuminni er hlutfallið hærra, jafnvel allt að 10%. Jákvæð óbein áhrif verða einnig veruleg. Verðtryggð lán hækka 4% minna en ella og frjáls samkeppni mun auk fjölbreytni matvæla og lækka verð. Samtals bætir þetta hag heimila verulega eða um 40 til 50 þús. kr. á mánuði. Önnur leið til að bæta hag heimilanna, sem reyndar tekur lengri tíma, er að taka upp traustan alþjóðlegan gjaldmiðil, evruna. Það mun einnig bæta hag heimilanna um tugi þúsunda á mánuði vegna lægri vaxtagreiðslna og þess að atvinnulífið mun eflast og dafna hraðar með traustum gjaldgengum gjaldmiðli.Kröfur til stjórnvalda Verkalýðshreyfingin ætti að knýja á um raunhæfar kjarabætur til framtíðar með því að beina þessum kröfum að stjórnvöldum:1 Opnað verði á tollfrjálsan innflutning matvæla. Allar þjóðir Evrópusambandsins hafa opið á viðskipti með matvæli. Þær styrkja sinn landbúnað líka þrisvar sinnum minna en við að meðaltali, sem hlutfall af heildar opinberum útgjöldum. Landbúnaðarstyrkir kosta skattgreiðendur í hærri sköttum sem þyrfti að lækka einnig. Okkar landbúnaður er bæði með belti og axlabönd og kostar heimilin allt of mikið, sérstaklega þau efnaminni. Eins og margar velmeinandi þjóðirnar ættum við að opna matvælamarkað okkar, líka fyrir þróunarlöndunum og hjálpa völdum svæðum að þróa sinn landbúnað og útflutning afurða m.a. til okkar. Slík þróunaraðstoð er raunhæf og árangursrík.2 Þjóðaratkvæðagreiðsla verði samhliða sveitarstjórnakosningunum um hvort ljúka eigi aðildarsamningi við Evrópusambandið. Samningurinn verði síðan lagður undir þjóðina þegar hann liggur fyrir. Báðir stjórnarflokkarnir hafa það í sinni stefnu að aðildarsamningum verði ekki fram haldið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Þeir ýta framkvæmdinni á undan sér af hræðslu við að samþykkt verði að ljúka samningum. Það þarf því að hjálpa þeim við að standa við loforðin sem þeir hafa gefið kjósendum sínum. Sumum þeirra finnst hlægilegt til þess að hugsa að þurfa að fara að þjóðarvilja, lengi skal manninn reyna. Aðild að ESB gagnast heimilunum í landinu meðal annars með opnum viðskiptum og traustum alþjóðlegum gjaldmiðli. Þegar búið er að opna á innflutning landbúnaðarvara sbr. ofangreint, verður auðvelt að ná samningum því sjávarútvegurinn verður ekki vandamál eftir þær breytingar sem sambandið gerði nýlega á sinni sjávarútvegsstefnu. Með samningum fáum við tollfrjálsan aðgang fyrir fullunnar sjávarafurðir á Evrópumarkað, núna er á þeim 10% tollur. Það verður því nettó ávinningur af samningum hvað varðar sjávarútveginn og tækifæri opnast á sviði sem við kunnum vel til verka sem mun nýtast til athafna á alþjóðavísu. Ef fólk vill sækja kaupmáttaraukningu og bætt lífskjör þá liggur leiðin um breytingar eins og þær sem að ofan er lýst en síður um krónutöluhækkanir launa. Gott og gleðilegt ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Skoðun Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun