Sköpunin, listin, náttúran og heimskan Björn Þorláksson skrifar 16. janúar 2014 06:00 Einn forstjóra Nike flaug milli jóla og nýárs á síðasta ári frá Boston til Íslands í þeim erindagjörðum að gera samning við íslenskan listamann um hönnun á nýrri skólínu. Fundir þeirra tveggja gengu vel og varð að veruleika að Nike-stjórinn eyddi áramótunum á Íslandi, svo vel leist honum á landið. Listamaðurinn bauð honum í partí til Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu á gamlárskvöld og fannst bandaríska viðskiptamanninum afar mikið um, enda mikill aðdáandi Bjarkar. Andlitið datt af honum þegar hann hitti Bono í partíinu. Og síðar um nóttina kastaði Damon Albarn á hann kveðju. Nike-forstjóranum leið eins og Lísu í Undralandi. „Hvers konar land er þetta sem þið eigið?“ spurði hann og kleip sig í handlegginn. Nokkrum dögum áður höfðu franskir ferðamenn notið akureyrskrar gestrisni eins og fjallað var um í fjölmiðlum. Akureyrsk fjölskylda sýndi þá víðsýni og gjafmildi að opna hús sitt á sjálft aðfangadagskvöld fyrir útlendingum sem vildu kynnast íslensku jólahaldi. Það er glæsilegt viðhorf sem sérhver stórþjóð í heimi myndi öfunda okkur af. En aftur að Nike-forstjóranum. Ekki er að efa að hann mun segja söguna af íslensku áramótunum, hvar sem hann kemur í heiminum á árinu. Hvaða líkur eru á því að bissnessmaður í Boston hitti Björk, Damon Albarn og Bono á sömu freðnu þúfunni lengst norður í rassgati?! Nike-forstjórinn er örugglega þegar farinn að selja landið okkar fyrir Ferðamálastofu. „Word of mouth“ er það kallað á ensku þegar upplifun og reynsla berst frá manni til manns. Engir peningar geta keypt áhrifin af því. Engir.Skammsýni Samt er það þannig að skammsýnir pólitíkusar á Íslandi tala bara um peninga og langflestar fréttir okkar hverfast um framboð á peningum, vörslu þeirra, gnótt eða í síðustu tíð – skort. Skorturinn hefur orðið til þess að margir vilja lama skapandi starfsemi hér á landi, eða a.m.k. veikja hana. Ástæða þess að Björk, Bono og Damon og fleira fólk með snilligáfu kýs að verja áramótunum á Íslandi er að í náttúru og menningu okkar finnur fólk kærleika, kraft, örvun og andlegt fóður. Ekki gamalli kynþáttaþjóðmenningu heldur nútímamenningu. Samt liggja þessi helstu verðmæti þjóðarinnar nú vel við höggi stjórnmálamanna. Annars vegar skapandi hugsun. Hins vegar íslensk náttúra. Umræðan um listamannalaunin er einn anginn af þeirri skammsýni að skapandi listamenn séu einskis nýtir nema þeir sjái sér efnalega farborða sjálfstætt. Með sama hætti er það sennilega ranghugmynd að fjármunir til ferðamannaátaks skili nokkru sinni meiri tekjum inn í landið en orðsporið sem af okkur fer í gegnum fólk eins og forstjórann frá Nike. Hið skapandi element Íslendinga hefur margendurtekið vegna fámennis okkar og einangrunar vakið heimsathygli. Sköpunargáfan er að einhverju leyti afurð ytri aðstæðna en hún gæti líka verið afurð félagslegrar sérstöðu, til dæmis þeirrar að við höfum engan her. Sköpunin er óþrjótandi auðlind nema stjórnvöld drepi hana niður. Þá er þetta orðið gott. Allir sem mestur veigur er í munu fara héðan. Og enginn koma í heimsókn. Við höfum sýnt milljónum fórnarlamba viðskiptahátta okkar að Íslendingar kunna ekkert að reka banka á alþjóðavísu, við erum versta og siðvilltasta bankafólk í heimi, það sýnir sagan. Við höfum heldur ekki lært að græða pening á virkjunum. Erlendar skýrslur gefa Íslandi falleinkunn þegar kemur að framlegð í orkugeiranum. En við eigum Björk, við eigum Sjón, við eigum listamenn og menningu sem fjölmörgum þykir forvitnileg. Við eigum land sem býr yfir stórbrotinni og einstæðri náttúru sem margir öfunda okkur af. En við eigum stjórnmálamenn sem enginn öfundar okkur af. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hjálp, barnið mitt spilar Roblox! Kristín Magnúsdóttir Skoðun Ævinlega þakkláti flóttamaðurinn Zeljka Kristín Klobucar Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Skoðun Umsókn krefst ákvörðunar – ekki ákalls Erna Bjarnadóttir Skoðun Leikrit Landsvirkjunar Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Skoðun Vér vesalingar Ingólfur Sverrisson Skoðun Líkindi með guðstrú og djöflatrú Gunnar Björgvinsson Skoðun Svínsleg mismunun gagnvart eldra fólki Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Höfum alla burði til þess Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Umsókn krefst ákvörðunar – ekki ákalls Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hjálp, barnið mitt spilar Roblox! Kristín Magnúsdóttir skrifar Skoðun Líkindi með guðstrú og djöflatrú Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Ævinlega þakkláti flóttamaðurinn Zeljka Kristín Klobucar skrifar Skoðun Vér vesalingar Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Leikrit Landsvirkjunar Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Svona eða hinsegin, hvert okkar verður næst? Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Reynisfjara og mannréttindasáttmáli Evrópu Róbert R. Spanó skrifar Skoðun Að hlúa að foreldrum: Forvörn sem skiptir máli Áróra Huld Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Þurfum við virkilega „leyniþjónustu”? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Byrjað á öfugum enda! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Væri ekki hlaupið út aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gervigreind fyrir alla — en fyrir hvern í raun? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hefur ítrekað hótað okkur áður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar Skoðun Bandaríkin voru alltaf vondi kallinn Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Erum við á leiðinni í hnífavesti? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Ákall til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að standa við gefin loforð Laura Sólveig Lefort Scheefer,Snorri Hallgrímsson,Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Ida Karólína Harris,Antonia Hamann,Julien Nayet-Pelletier skrifar Skoðun Kæfandi klámhögg sveitarstjóra Jón Trausti Reynisson skrifar Skoðun Klár fyrir Verslunarmannahelgina? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Vegið að börnum í pólitískri aðför að ferðaþjónustunni Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Hið tæra illa Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Ferðamannaiðnaður? Nei, ferðaþjónusta! Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Hæðarveiki og lyf Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Landsvirkjun hafin yfir lög Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Fjárskipti við slit óvígðrar sambúðar: Meginreglur og frávik Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að loka landinu – við þurfum að opna augun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Ákall til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að standa við gefin loforð Laura Sólveig Lefort Scheefer,Snorri Hallgrímsson,Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Ida Karólína Harris,Antonia Hamann,Julien Nayet-Pelletier skrifar
Skoðun Fjárskipti við slit óvígðrar sambúðar: Meginreglur og frávik Sveinn Ævar Sveinsson skrifar