Fimmti hver fékk greitt frá TR Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 24. júní 2014 09:02 Rúmlega tíu þúsund konur voru metnar 75 prósenta öryrkjar hér á landi á síðasta ári en sjö þúsund karlar. Fréttablaðið/Vilhelm
Rúmlega fimmti hver Íslendingur fékk greiðslur í einhverri mynd frá Tryggingastofnun ríkisins á síðasta ári. Þetta eru lífeyrisgreiðslur, félagslegar bætur, greiðslur til foreldra langveikra og alvarlega fatlaðra barna eða fjárhagsaðstoð til lifandi líffæragjafa svo dæmi séu nefnd. Þeim sem fengu greiðslur frá stofnuninni fjölgaði um 3.500 frá árinu á undan. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu Tryggingastofnunar fyrir síðasta ár. Örorkulífeyrisþegum fjölgaði um rúm fjögur prósent en endurhæfingarlífeyrisþegum fjölgaði þó hlutfallslega mest eða um 14,5 prósent. Hjá Tryggingastofnun voru rúmlega 17 þúsund einstaklingar með 75 prósenta örorkumat árið 2013. Geðraskanir voru algengasta fyrsta orsök örorku eða hjá tæplega 38 prósentum. Þetta er heldur hærra hlutfall en tíu árum áður en þá var hlutfallið 35 prósent. Stoðkerfissjúkdómar fylgdu fast á eftir og voru önnur algengasta orsök örorku. Mun fleiri konur voru með örorkumat en karlar. Konur sem voru metnar 75 prósenta öryrkjar á síðasta ári voru 10.200 en tæplega sjö þúsund karlar voru í sömu stöðu. Munur var einnig á dreifingu sjúkdómaflokka eftir kynjunum. Hjá körlum voru geðraskanir stærsti flokkurinn, en stoðkerfissjúkdómar hjá konum.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Fleiri fréttir Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Sjá meira