Allir snjallir! Anna Margrét Sigurðardóttir skrifar 4. desember 2014 00:00 Á dögunum var Foreldradagur Heimilis og skóla haldinn í fjórða sinn og að þessu sinni var yfirskriftin „Allir snjallir“. Yfirskrift Foreldradagsins vísar í snjalltækjanotkun í samfélaginu sem vissulega er orðin hluti af menningu okkar og nær til allra aldurshópa.Litlu snillingarnir Þau börn sem eru í fyrstu bekkjum grunnskólans hafa allt sitt líf alist upp við tilvist snjalltækja. Ekki er óalgengt að heyra foreldra eða ömmur og afa dást að því hve barnið á öðru ári sé leikið á spjaldtölvu heimilisins og órana um hvaða snillingur framtíðar séu þar á ferð. En öllum nýjungum og tækni þurfa líka að fylgja reglur og viðmið. Samfélagið þarf að komast að niðurstöðu um skynsamlega notkun því knýjandi þörf er á sameiginlegum viðmiðum um snjalltæki í skólum landsins svo koma megi á sátt og vinnufriði. Rannsóknir segja okkur að þar sem foreldrar og börn eru í góðum tengslum eru meiri líkur á að börn fari að settum reglum og virði viðmið samfélagsins. Fyrst og síðast er það á ábyrgð foreldra að takast á við hegðun barna sinna. Foreldrasáttmáli Heimilis og skóla er öflugt tæki fyrir foreldra til að sameinast um grundvallarviðmið og fara saman að reglum samfélagsins.Samstaða er mikilvæg Skólasamfélagið þarf í heild sinni að tala saman og móta stefnu sem allir geta farið eftir. Í Brekkuskóla á Akureyri var haldið málþing sl. vor þar sem allir aðilar skólasamfélagsins voru kallaðir til og reynt var að komast að sameiginlegri niðurstöðu um notkun snjalltækja. Málþing sem þetta er til fyrirmyndar fyrir aðra skóla landsins. Í Sæmundarskóla gilda skýrar reglur en nemendur mega nota snjalltæki í tíma með leyfi kennara og nota má tæki í frímínútum en ekki taka myndir. Við brot á reglum er tækið tekið af nemanda og afhent í lok skóladags. Snjalltæki bjóða upp á ótrúlega möguleika í skólastarfi og margir skólar eru vel tækjum búnir. Framþróunin verður ekki stöðvuð heldur ber okkur að nýta snjalltæknina skynsamlega í leik og starfi.Eignarréttur og vinnufriður Eins og að framan er getið hafa margir skólar sett sér reglur um snjalltækjanotkun en árekstrar eru tíðir því oft og tíðum er dansað eftir hárfínni línu og ekki alltaf ljóst hvort viðbrögð séu rétt eða röng. En sitt sýnist hverjum og sumir hafa þá skoðun að gera megi snjalltæki upptæk af nemendum ef þau valda truflun í skóla eða eru notuð á meiðandi hátt. En öllum ber að virða lög og friðhelgi einkalífs og eignaréttur er í gildi bæði fyrir börn og fullorðna. Börn eru varin af íslenskum lögum og ekki má brjóta á réttindum barna þegar fullorðnum einstaklingum finnst það henta. Vera má að stjórnvöld þurfi að skoða hvort tilefni sé til að breyta lögum í þá veru sem er t.d. í Svíþjóð en þar eru heimildir til upptöku tækja af þessu tagi rýmri en hér á landi.Samráð um viðmið Um þessar mundir vinna Heimili og skóli og SAFT að því að kalla saman ýmsa hagsmunaaðila í samráðshóp sem mun taka saman viðmið um notkun snjalltækja í skólum. Þar munu eiga sæti fulltrúar foreldra, nemenda, kennara og annarra sem tengjast skólasamfélaginu. Heimili og skóli og SAFT stefna að því að kynna þessi viðmið á alþjóðlega netöryggisdeginum, 10. febrúar á næsta ári. Samfélagið kallar eftir skýrum reglum og við erum að bregðast við því ákalli. Upptaka af Foreldradeginum og ráðstefnunni Allir snjallir er aðgengileg á heimasíðu Heimilis og skóla, heimiliogskoli.is og á saft.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk skrifar Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir Skoðun