Lekamál – umhverfismál Ólafur Þ. Hallgrímsson skrifar 4. desember 2014 00:00 Flokksráðsfundur Vinstri grænna sendi frá sér ályktun í fjölmiðlum nýlega, þar sem lýst var vantrausti á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra vegna lekamálsins svonefnda og krafðist afsagnar hennar. Nú ætlar undirritaður ekki að leggja dóm á hið margumtalaða lekamál eða störf Hönnu Birnu í því samhengi. Í mínum huga og eflaust margra annarra er hér um mál að ræða, sem blásið hefur verið út, að því er virðist, af litlu tilefni. Hitt vekur undrun sem stuðningsmaður VG, að þetta skuli vera eina ályktunin, sem alþjóð heyrir frá flokksráðsfundi VG. Ég hefði vænst þess, að ályktað yrði um önnur og þýðingarmeiri málefni samfélagsins, eins og t.d. umhverfismálin, því þar er vissulega af ýmsu að taka um þessar mundir. Hvert stefnir í þeim málaflokki undir forustu núverandi ríkisstjórnar og með „umhverfisráðherra“ Framsóknarflokksins í broddi fylkingar? Ráðherrann, sem ætti að vera málsvari náttúrunnar, lýsti því yfir, er hann tók við embætti, að í rauninni væri sérstakt umhverfisráðuneyti óþarft, enda hefur hann unnið dyggilega í þeim anda síðan. Byrjað var á að krukka í rammaáætlunina svonefndu, sem Alþingi hafði samþykkt í tíð fráfarandi ríkisstjórnar, og færa virkjanakosti í Þjórsá úr biðflokki í nýtingarflokk, jafnframt því sem Landsvirkjun er gefinn ádráttur um, einu sinni enn, að fara inn í Þjórsárver með miðlunarlón, svæði sem maður hélt, að þjóðin væri orðin einhuga um að bæri að vernda, ekki bara að hluta, heldur allt. Mun þjóðin sætta sig við eitthvað annað? Uppi eru hugmyndir um byggingu a.m.k þriggja kísilmálmverksmiðja, á Bakka við Húsavík, Grundartanga og Helguvík. Einhvers staðar mun þurfa að bæta við virkjunum til að afla raforku til þessara verksmiðja. Mengun mun aukast og loftgæði versna. Staðreynd er, að stóriðjan leggur til einn stærsta hluta af útblæstri gróðurhúsalofttegunda á Íslandi í dag. Því verður ekki mótmælt með rökum. Nú ætlum við að bæta þar hressilega í. Að sjálfsögðu mun umhverfisráðherrann leggja blessun sína yfir þessar fyrirætlanir, hvað annað? Á Reyðarfirði gætir nú mengunar í vaxandi mæli frá álveri Alcoa, flúormagn í grasi hefur mælst yfir viðmiðunarmörkum þriðja árið í röð. Fólki er ráðlagt að skola matjurtir, áður en neytt er, og dregið hefur úr berjatínslu. Á Reyðarfirði er stöðugt „eldgos“ í gangi, sagði greindur og glöggur bóndi á Héraði við mig í sumar og átti þar við mengun frá álverinu, sem farið er að gæta einnig uppi á Héraði. Ekki furða þótt brennisteinsígildin mælist há á Reyðarfirði, nú þegar gosmökkurinn frá Holuhrauni kemur þar til viðbótar.Vantraust á rangan ráðherra? Alþjóð er kunnugt hvað er að gerast í Lagarfljóti, sem búið er að umbreyta með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar, svo þar virðist lífríkið á undanhaldi sökum versnandi lífsskilyrða í Fljótinu, minnkandi gegnsæis og kólnunar. Ekki minnist ég þess að hafa séð eitt orð um umturnan Lagarfljótsins frá flokksráðstefnum VG eða öðrum ályktunum. Hafi það farið framhjá mér, biðst ég forláts. Vísindamenn um allan heim eru nú nær sammála um, að hlýnun andrúmsloftsins, sem við erum farin að sjá hrikalegar afleiðingar af í veðurfari, sé af mannavöldum. Víst ber okkur að axla ábyrgð í loftslagsmálum til jafns við aðrar þjóðir í stað undanþága, sem við höfum stundað fyrir okkar stóriðju, enda höfum við undirgengist það samkvæmt Kyoto-sáttmála og loftslagsráðstefnum. Það gerum við ekki með þeim áformum, sem nú eru uppi. Þetta gerir yngra fólkið sér ljóst. Í ályktun samþ. á landsfundi Ungra vinstri grænna (UVG) á Eskifirði nú í haust, segir m.a að UVG „leggist eindregið gegn aðför ríkisstjórnarinnar að ísl. náttúru“. Einnig segir, að „greinilegt sé, að enginn umhverfisráðherra sé í ríkisstjórn, aðeins sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem þráði lengri starfstitil“. Hér er talað tæpitungulaust. Stundum er gott að hlusta á hina ungu. Var kannski verið að lýsa vantrausti á rangan ráðherra? Vonandi sjáum við ekki ályktun frá næsta flokksráðsfundi VG fjalla um hvalbeinagrindina á Húsavík eða byssueign lögreglunnar. Framtíðin má ekki við því. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk skrifar Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Sjá meira
Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun
Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun