Óðni Jónssyni fréttastjóra RÚV sagt upp störfum Jakob Bjarnar skrifar 18. mars 2014 10:59 Óðinn Jónsson er meðal þeirra sem hefur fengið uppsagnarbréfið. Magnús Geir sagði öllum framkvæmdastjórum stofnunarinnar upp störfum og ætlar að jafna rækilega hlut kvenna í því liði.
Í tilkynningu frá Magnúsi Geir Þórðarsyni kemur fram að öllum framkvæmdastjórum RÚV verði sagt upp og stöður þeirra auglýstar lausar til umsóknar. Þeir sem fá uppsagnarbréfið eru þeir Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri sjónvarps, Bjarni Kristjánsson fjármálastjóri, Eyjólfur Valdimarsson tæknistjóri, Óðinn Jónsson fréttastjóri, Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV, Magnús R. Einarsson dagskrárstjóri útvarps, Þorsteinn Þorsteinsson markaðsstjóri, Berglind G. Bergþórsdóttir mannauðsstjóri og Ingólfur Bjarni Sigfússon nýmiðla- og vefstjóri. Hvað Bjarna Guðmundsson varðar þá hafði hann þegar lagt inn uppsagnabréf þegar hann sótti um stöðu útvarpsstjóra.Á starfsmannafundi, þar sem þessi ákvörðun var kynnt, var sú spurning borin upp hvort með þessu væri verið að losa sig við fréttastjórann, Óðinn Jónsson? Slíkar bollaleggingar hafa verið uppi, meðal annars í tengslum við meinta slagsíðu sem stjórnarliðar á borð við Vigdísi Hauksdóttur formann fjárlaganefndar hafa haldið fram að sé á Ríkisútvarpinu, að það sé hallt undir aðild að Evrópusambandinu. Magnús svaraði því neitandi með þeim orðum að hann stundaði ekki slík vinnubrögð. Hins vegar liggur fyrir að yfirlýst stefna útvarpsstjóra er að jafna hlut kynjanna en framkvæmdastjórarnir eru að mestu leyti karlmenn. Þá hvatti Magnús Geir alla framkvæmdastjórana til að sækja um aftur. Nýtt lið framkvæmdastjóra mun taka til starfa um miðjan apríl. Þeir sem fyrir eru munu starfa þar til þá. UPPFÆRT 12:00 Heimir Már Pétursson fréttamaður náði tali af Magnúsi Geir eftir fundinn og hann spurði útvarpsstjóra hreint út hvort hann væri að losa sig við Óðinn til að þóknast stjórnarherrunum? „Nei, þvert á móti. Ég tók að mér þetta starf sem útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins vegna þess að ég sé mikil tækifæri, mikla möguleika fyrir Ríkisútvarpið til framtíðar. Það er mitt hlutverk að koma ferskur að starfsseminni, horfa á starfsemina heildstætt, breyta því sem þarf að breyta og stokka upp,“ segir Magnús Geir.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira