Er ekki aðlaðandi í konugervinu 5. ágúst 2014 00:01 Vísir/Stefán „
Já, ég ætla að vera þarna veislustjóri í þessari miklu gleði- og hæfileikaveislu og hlakka mikið til,“ segir Þorsteinn Guðmundsson sem ætlar að vera kynnir og sjá um að skemmta fólki á milli atriða í Draggkeppni Íslands sem fram fer annað kvöld í Hörpu. Draggkeppni Íslands er árleg keppni þar sem draggkóngar og draggdrottningar berjast um hinn eftirsótta titil draggkóngur og draggdrottning Íslands. Þetta er í 17. skiptið sem keppnin er haldin og þema keppninnar í ár er „On the cover of the DraggingStones“.Frá keppninni í fyrra „Ég get ekki sagt að ég sé draggunnandi en hef samt nokkrum sinnum klætt mig í kvenmannsföt en það hefur aðallega verið vinnutengt,“ segir Þorsteinn og hlær. Hann segir að af sinni reynslu að dæma sé það yfirleitt stutt gaman að klæðast kvenmannsfötum. „Mér þykja kvenmannsföt óþægileg og svo er ég bara mjög óaðlaðandi kona. Eftir að ég hafði brugðið mér í konugervi í Fóstbræðrum í fyrsta sinn var reynt að sneiða hjá því seinna meir að setja mig í kvenmannsgervi. Það eru ekki allir sem geta verið góðar konur en Jón Gnarr getur verið ákaflega flott kona og kelling og algjörlega sannfærandi þótt hann sé sannfærandi og flottur karlmaður,“ útskýrir Þorsteinn. Hann á ekki von á því að fara í dragg en útilokar þó ekki að hann næli sér í varalit þegar líða tekur á kvöldið. „Ég hlakka sérstaklega til að sjá dansatriðin, ég hef mjög gaman af vel útfærðum dansatriðum sem innihalda músík sem ég fíla.“ Keppnin fer fram í Eldborgarsalnum í Hörpu annað kvöld.
Mest lesið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Bíó og sjónvarp „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Lífið samstarf Fleiri fréttir Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Sjá meira